Jól í Árborg

Hátíðardagskrá aðventu og jóla 2026

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sovétför Sniglabandsins

  • 3.12.2026

Bókakynning á Bókasafni Árborgar Selfossi fimmtudaginn 3. desember kl. 17:00.

Sovétför Sniglabandsins er ferðasaga af merkilegri ferð hljómsveitarinnar til Sovétríkjanna haustið 1989, rétt áður en þau liðuðust í sundur. Sagan er viðburðarík og oft á tíðum kostuleg, enda er hljómsveitin þekkt fyrir uppátækjasemi.

Hljómsveitin Sniglabandið fór í ævintýralegt ferðalag til Sovétríkjanna í september 1989. Á þeim tíma voru afskaplega lítil samskipti milli austurs og vesturs, þó örlítið væri farið að rofa til í kjölfar leiðtogafundar Reagans og Gorbasévs í Höfða. Hópurinn fór á 5 mótorhjólum og gömlum gulum póstvagni sem keyptur var í Þýzkalandi. Gist var í heimahúsum, svo hljómsveitin komst í nána snertingu við heimafólk og öðlaðist ofurlitla innsýn í hugarheiminn og tilveruna í Sovétríkjunum rétt áður en Berlínarmúrinn féll og allmikil uppstokkun varð á þessum heimshluta.

Frásögnin iðar af lífsgleði og ævintýraþrá. Bókin er myndskreytt af Einari Rúnarssyni, en einnig getur að líta nokkrar ljósmyndir úr ferðinni.


Viðburðadagatal

30.10.2026 - 30.11.2026 Litla Leikhúsið Leikfélag Selfoss frumsýnir Grandaveg 7

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.

Sjá nánar
 

28.11.2026 - 20.12.2026 Miðbær Selfoss Jólamarkaður við Brúarstræti

Komdu og upplifðu sannkallaða jólastemningu í hjarta Selfoss.
Fjölbreytt úrval af fallegum vörum, handverk, mat, tækifærisgjöfum, jólagjöfum og notalega stemning fyrir alla fjölskylduna.

Sjá nánar
 

29.11.2026 Skálavíkurtún Kveikt á jólatré Stokkseyringa

Sunnudaginn 29. nóvember 2026 kl. 17 kveikjum við á jólatrénu á Stokkseyri, dönsum í kringum það og syngjum jólalög með körlum klæddum rauðu.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica