Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Laugardaginn 29. ágúst

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Spéspegill samfélags. Upplestur á Fjöruborðinu

  • 5.9.2026 - 12.9.2026, 15:00 - 16:00, Fjöruborðið

Grín, gamansemi, spaug, ádeila, revíur og myndasögur. Húmor er ómissandi og hefur sjaldan haft jafn mikilvægu hlutverki að gegna og á þessum tímum. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Una Margrét Jónsdóttir lesa uppúr bókum sínum og spjalla við Hörpu Rún Kristjánsdóttur, rithöfund, ritstjóra og útgefanda og velta fyrir sér gildi þess að kátína og komedía fái að njóta sín í samtímanum.

Báðar hafa þær Lóa og Una fjallað um húmor í verkum sínum, hvor með sínum hætti. Una hefur ritað tvær bækur, Silfuröld revíunnar og Gullöld revíunnar um sögu gamanleikja sem gera grín að samtíma sínum. 

Lóa hefur gefið út margar myndasögur þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér og samtíma sínum í Lóaboratoríum bókunum og Dæs og Fnæs.

Upplesturinn er hluti af Haustgildi - menning er matarkista í ár og hefst kl. 15.

Screenshot-2026-08-21-at-09.19.27


Viðburðadagatal

6.8.2026 - 14.9.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.

Sjá nánar
 

6.8.2026 - 14.9.2026 Sundhöll Selfoss Sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar í Listagjá og Sundhöll Selfoss

Sýningarnar verða formlega opnaðar fimmtudaginn 6. ágúst og standa til 14. september.  

Sjá nánar
 
Frettatilkynningar20x30-5-

27.8.2026 Bókasafn Árborgar, Selfoss Ástin og Ísfólkið

Fimmtudaginn 27.ágúst kl. 19:30. Rómantískur ágústmánuður er nú runninn upp og við fáum einstaklega skemmtilega fyrirlesara til að fjalla um ástina og Ísfólkið. Katrín Jakobsdóttir, okkar eina sanna, fjallar um ástarsögur og Brynhildur Björnsdóttir fjallar um bókaflokkinn "Ísfólkið" eftir Margit Sandemo.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica