Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Straumar og stefnur | Haust 2022

  • 2.2.2023 - 28.2.2023, Bókasafn Árborgar, Selfoss

Nemendur í framhaldsáfanganum Straumar og stefnur sem er myndlistaráfangi í FSu sýna Listagjánni á Bókasafni Árborgar 02.- 28. febrúar 2023.

  • FSu_04

Myndlistarnemar FSu halda áfram uppteknum hætti að setja upp sýningu í opinberu sýningarrými utan skólans. Nú er það nemendur í framhaldsáfanganum Straumar og stefnur sem fá þjálfun í uppsetningu og kynningu á eigin verkum. Verkin voru unnin á haustönn 2022.

  • FSu_01
  • FSu_03
  • FSu_02

Sýningin fer fram í Listagjánni á Bókasafni Árborgar

Gestum gefst tækifæri á að upplifa fjölbreytt listaverk, bæði að útliti og innihaldi. Í áfanganum Straumar og stefnur er unnið út frá kenningum í fagurfræði, fjölbreyttum myndgerðum og nemendur hlaða verk sín tilgangi sem tengjast ýmist goðsögnum eða Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Það er margt á seiði á listalínu FSu og áhugi nemenda mikill

FSu státar af fjölbreyttum áföngum á sviði sköpunar. Þar má nefna stafræna smiðju, Fablab, ljósvakamiðlun, leiklist, textíl hönnun, grafíska hönnun, grafíska miðlun ásamt myndlistinni. Áfangarnir eru opnir öllum nemendum skólans, óháð námsbrautum. Einnig má nefna að það er alltaf gefandi og gaman að fá eldra fólk með áhuga á skapandi greinum inn í hinn hefðbundna nemendahóp.

Veggjalistin er sýning sem alltaf er opin áhorfendum en um er að ræða vegg er vísar að bílastæði FSu og er tæplega 100 metra langur. Útkoman er frábær útimyndlistarsýning. Gaman er að segja frá því að fyrrum nemandi okkar á listalínunni, Þóranna Ýr Guðgeirsdóttir hefur unnið að veggjalist víðs vegar um Selfoss.

Myndlistarkennarar FSu
Lísa, Ágústa og Anna Kristín

Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 09 - 18 og laugardaga kl. 10 - 14


Viðburðadagatal

14.5.2025 20:00 - 21:00 Skálinn Strandahlaup 2025

Strandarhlaup Ungmennafélags Stokkseyrar við Skálann verður haldið fjóra miðvikudaga í röð.

Sjá nánar
 

16.5.2025 9:30 - 11:00 Barnaskólinn | Stokkseyri Barnabær | Uppskeruhátíð

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri býður til lokahátíðar Barnabæjar.

Sjá nánar
 

20.5.2025 19:00 - 21:00 Sviðið Listin að vera leiðinlegt foreldri

Ársæll Már Arnarson prófessor við Háskóla Íslands heldur fræðsluerindi fyrir foreldra og öll sem láta sig málið varða!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica