Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Sumarnámskeið í myndlist: Blekteikningar

  • 15.6.2026 - 19.6.2026, Tónsmiðja Suðurlands

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Blekteikningar (e. ink drawing)
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 13:00 - 15:00

Manga, myndasögur og myndskreytingar. Blekteikniaðferðir eru notaðar í mörgum miðlum og stílum. Þetta námskeið fer yfir þrennskonar grundvallarnálgun á blekteikningum, sem og grunnaðferðir í strúktur og skyggingum. Allt efni er innifalið og með námskeiðinu fylgir skissubók sem nemendur fá að eiga.

Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann myndskreytt barnabækur eins og “Skotti og sáttmálinn” en einnig unnið sérstaklega við persónusköpun. Þá hannaði hann lukkudýr (e. mascot) Dýraríkisins og teiknaði allar myndirnar af þeim en þær má finna í lógóinu sjálfu og á heimasíðu verslunarinnar.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 12 nemendur á táningsaldri.

Verð: 23.900 kr

Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/courselist/7


Viðburðadagatal

8.6.2026 Sandvíkursetur Ungmennakvöld 18-30 ára hjá MFÁ

Ungmennakvöld MFÁ eru á mánudögum þar sem listakonan Natasja Buus leiðir kvöldin. 

Sjá nánar
 

13.6.2026 - 21.6.2026 Eyrarbakki Opnunarhátíð Alþjóðlegu listahátíðarinnar Oceanus Stórsjór 2026 á Eyrarbakka

Afrakstur vinnu listamannanna sýndur, eftir mánaðardvöl á Eyrarbakka / 
The artists' work is on display, after a month-long stay in Eyrarbakki

Sjá nánar
 

15.6.2026 - 19.6.2026 Tónsmiðja Suðurlands Sumarnámskeið í myndlist: Persónusköpun

Í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67: Myndlist; Persónusköpun
Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica