Af leikskólamálum í Árborg
Haustið er tími tilhlökkunar og rútínu þar sem leikskóla- og grunnskólastarf hefst að nýju.
Í dag rekur Sveitarfélagið Árborg sex leikskóla á átta starfsstöðvum
Leikskólarnir starfa eftir mismunandi stefnum og hafa allir sinn leikskólabrag. Leikskólinn Strandheimar rekur útibú á tveimur starfsstöðvum, Brimver á Eyrarbakka og Æskukot á Stokkseyri.
Á Selfossi eru leikskólarnir Hulduheimar, Álfheimar, Goðheimar, Árbær og Jötunheimar sem er rekinn á tveimur starfstöðvum eftir að nýtt húsnæði við Stekkjaskóla var tekið í notkun í ágúst síðastliðinn og með því fjölgaði leikskólaplássum í sveitarfélaginu um þrjátíu.
Öllum börnum sem eru fædd í maí 2022 eða fyrr, sem áttu virka umsókn í vor þegar að úthlutun fór fram, var boðið leikskólapláss í Árborg.
Aðlögun hefur gengið vel á leikskólunum og er starfsemi þeirra komin á fullt skrið eftir sumarleyfi.
Fjölgun íbúa kallar á fjölbreytt úrræði
Íbúar í Árborg nálgast nú um ellefu þúsund og sjöhundruð og því er mikilvægt að kanna hug foreldra og verðandi foreldra leikskólabarna til aukinnar fjölbreytni í leikskólaúrræðum í sveitarfélaginu.
Foreldrar leikskólabarna í Árborg og foreldra barna sem eru á bið eftir leikskólaplássi hafa fengið senda könnun þar sem sveitarfélagið leitar eftir áliti foreldra á því að Hjallastefnuleikskóli verði rekinn í sveitarfélaginu.