Áhrif kvennaverkfalls á opnun sundlauga í Árborg
Að gefnu tilefni vill fjölskyldusvið Árborgar árétta að Sveitarfélagið Árborg mun styðja við aðgerðir kvenna og kvár næstkomandi þriðjudag þegar kvennaverkfall mun eiga sér stað.
Þær aðgerðir munu þó hafa viðtæk áhrif á stofnanir sveitarfélagsins og þá einna helst þær stofnanir sem heyra undir fjölskyldusvið, meðal annars leik- og grunnskóla, stofnanir á vettvangi velferðar, frítímans og íþróttamannvirki.
Tekin var sú ákvörðun að halda úti þeirri þjónustu sem möguleg er með þeim starfsmönnunum sem verða í vinnu á þriðjudaginn
Meðal annars verða leik- og grunnskólar lokaðir en skert starfssemi í t.d. sundlaugum og íþróttahúsum sveitarfélagsins. Sundlaugin á Stokkseyri verður lokuð en Sundhöll Selfoss með skerta opnun. Af öryggisástæðum og reglum um heilbrigði og umgengni verður ekki hægt að halda kvennaklefum og útiklefum opnum þennan dag.
Öll þau samfélagslegu áhrif sem eiga sér stað út af kvennaverkfalli sýnir mikilvægi kvenna og kvár á vinnumarkaði og að án þeirra verður ekki unnt að halda úti nauðsynlegri þjónustu við alla hópa í íslensku samfélagi.