Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar 2023
Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2023 er tilbúinn til endurskoðunar og var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 24. apríl 2024.
Rekstrarniðurstaða Sveitarfélagsins Árborgar samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var neikvæð um 1.269 millj. kr. á árinu 2023. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 var gert ráð fyrir 1.856 millj. kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu en uppfærð áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir 1.694 milljóna króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Þrátt fyrir neikvæða rekstrarniðurstöðu má með sanni segja að niðurstaða ársins sé töluvert betri en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir.
Tekjur ársins námu alls 17.951 millj. kr. og hækkuðu um 2.665 millj. kr. frá fyrra ári. Það er ánægjulegt að sjá að tekjur hafa vaxið um leið og haldið hefur verið aftur af hækkun rekstrargjalda frá því sem lagt var upp með í fjárhagsáætlun. Launakostnaður nam 9.686 millj. kr., gjaldfærð hækkun lífeyrisskuldbindinga nam 658 millj. kr. og annar rekstrarkostnaður nam 5.622 millj. kr. Framlegð af rekstri A og B hluta nam því 1.984 millj. kr. og það þrátt fyrir að hækkun lífeyrisskuldbindinga væri um 430 millj. kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Afskriftir rekstrarfjármuna námu 951 millj. kr. á árinu og rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var því jákvæð um 1.033 millj. kr. sem er mikil breyting frá fyrra ári en þá var rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði neikvæð um 599 millj. kr.
Áherslur og aðgerðir á árinu 2023
Strax í upphafi árs 2023 setti Sveitarfélagið Árborg sér fjárhagsleg markmið til að ná tökum á fjármálum sveitarfélagsins með aðstoð ráðgjafa frá KPMG með það að leiðarljósi að uppfylla að lágmarki kröfur sem kveðið er á um í lögum að standast lágmarksviðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Samkomulag við Innviðaráðuneytið um fjárhagslega aðgerðir og eftirlit var samþykkt í bæjarstjórn 1.mars 2023.
Unnið var samkvæmt aðgerðaráætluninni „Brú til betri vegar“ sem var kynnt fyrir íbúum á opnum íbúafundi í apríl 2023. Auk þess var markviss upplýsingagjöf til hagaðila s.s. íbúa, lánastofnana og eftirlitsaðila. Gripið var til aðgerða í rekstri, byggðum á ítarlegum greiningum. Innleiðing á breyttu verklagi við eftirfylgni áætlana, framsetningu fjárhagsupplýsinga og áætlanagerð.
Ljóst var að beita þyrfti blöndu af aðgerðum frá öllum hliðum starfseminnar þar sem rýna þurfti reksturinn og leita jafnframt leiða til aukinnar tekjuöflunar. Starfsfólk, forstöðufólk og æðstu stjórnendur lyftu grettistaki með margvíslegum aðgerðum sem fólu í sér stöðuga rýni og aðhald á öllum sviðum. Breytingar á regluverki og gjaldskrám voru innleiddar auk þess sem unnið var að sölu eigna.
Skuldaviðmið komið í 147,4%
Eftir krefjandi rekstrarár, erfiðar aðgerðir og endurskipulagningu í rekstri sveitarfélagsins er afar ánægjulegt að sjá að skuldviðmið A og B hluta skv. jafnvægis- og skuldareglu sveitarstjórnarlaga er nú komið í 147,4% en var 156,6% árið 2022 og stefndi í mun hærri tölu ef ekkert hefði verið að gert. Framlegð jókst verulega á milli ára eða úr 1,5% af tekjum árið 2022 í 11,1% árið 2023.
Veltufé frá rekstri er ein af lykiltölunum í ársreikningi og segir til um það svigrúm sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Það er styrkleikamerki að sjá að veltufé frá rekstri jókst verulega milli ára eða um 1.580 millj. kr., og nam 1.713 millj. kr. árið 2023 eða sem nemur 9,5% af heildartekjum. Til samanburðar var veltufé frá rekstri 133 millj. kr. árið 2022. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 550 millj.kr. á árinu. Í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að samkvæmt efnahagsreikningi í árslok 2023 nema næsta árs afborganir langtímaskulda og skuldbindinga alls 2.546 millj. kr.
Þann 1. janúar 2024 voru íbúar sveitarfélagsins 11.565 og fjölgaði um 513 frá fyrra ári eða um 4,6%. Sveitarfélagið Árborg er áttunda fjölmennasta sveitarfélag landsins og þar starfa um 1.170 starfsmenn í 750 stöðugildum í árslok 2023, til samanburðar störfuðu 1.252 starfsmenn hjá sveitarfélaginu í 837 stöðugildum árið 2022. Laun og launatengd gjöld bæjarstjóra, bæjarráðs og bæjarstjórnar námu 104 m.kr. árið 2023 en 107 m.kr. árið 2022 og því um lækkun að ræða á milli ára.
Skýr framtíðarsýn í fjármálum Sveitarfélagsins Árborgar
Þrátt fyrir batnandi grunnrekstur og aukna fjármunamyndun á það enn þá við að „betur má ef duga skal“. Verkefnið framundan er að halda áfram á braut ráðdeildar í rekstri og ábyrgrar fjármálastjórnunar, fylgja eftir aðgerðaáætlun bæjarstjórnar og byggja ofan á þann góða árangur sem þegar hefur náðst. Þannig tryggjum við sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins til framtíðar og getu þess til að sinna lögbundnum verkefnum sínum ásamt því að veita íbúum sem allra besta þjónustu og til framtíðar lækkunar á álögum.
Fjóla St. Kristinsdóttir
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar.