Farsæld barna í Árborg
Fjölskyldusvið Árborg gegnir leiðandi hlutverki á landsvísu í samvinnu við Barna- og fjölskyldustofu, í að innleiða stigskipta farsældarþjónustu í þágu farsældar barna.
Við gildistöku farsældarlaganna 1. janúar 2022 hófst innleiðingarferli sem áætlað er að taki fimm til sjö ár
Innan fjölskyldusviðs Árborgar er starfandi farsældarteymi sem ber ábyrgð á innleiðingu farsældarlaganna hjá sveitarfélaginu. Verkefnastjóri innleiðingar samþættrar þjónustu er Kristín Björk Jóhannsdóttir.
Markmið farsældarlaganna er að draga fram mikilvægi þess að verndandi þættir séu til staðar í lífi allra barna
Aðstæður og uppeldisskilyrði styðji við öryggi og traust tengsl, virka félagslega þátttöku, vellíðan í skólastarfi og daglegu lífi. Aðgengi að stuðningi og leiðsögn fyrir börn og forsjáraðila á að vera án hindrana, í takt við þörf á hverjum tíma.
Stigskipting þjónustu
Farsældarhringur á 1. stigi
Tengiliðir farsældar eru lykilaðilar í snemmtækum stuðningi við börn og fjölskyldur þar sem hlutverk þeirra er að vera forsjáraðilum og börnum til aðstoðar og leiðsagnar ef áhyggjur vakna eða vísbendingar eru um að þörfum barns sé ekki mætt.
Í sveitarfélaginu Árborg geta allir forsjáraðilar fengið samtal við tengilið í sínum leik- eða grunnskóla. Einnig er hægt að fá samtal við tengilið í Fjölbrautaskóla Suðurlands og á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Tengiliðir á vegum sveitarfélagsins eru staðsettir í leik- og grunnskólum Árborgar og hægt er að nálgast upplýsingar um þá á heimasíðum skólanna undir táknmynd um farsæld barna.
Forsjáraðilar geta óskað eftir samtali við tengilið til að ræða áhyggjur sínar og meta þörfina fyrir stuðning og samþætta þjónustu. Tengiliður leiðir foreldra og barn, ef við á, í gegnum matsviðtal. Í framhaldi undirrita forsjáraðilar beiðni um samþættingu þjónustu til að styðja við farsæld barns, ef ástæða er til.
Tengiliður í grunnþjónustu barnsins gerir áætlun um samþættingu á 1. stigi í samvinnu við foreldra og barn og fylgir markmiðum áætlunar eftir með þeim aðilum sem tengjast málinu t.d. umsjónarkennara, fulltrúa frá stoðþjónustu skólans, fulltrúa frá frístund, sérfræðingum frá skóla- og/eða velferðarþjónustu ef fyrir liggur beiðni um aðkomu þeirra.
Tengiliður
Farsældarhringur á 2. og 3. stigi
Ef niðurstöður, úr matsamtali tengiliðar eða í framhaldi vinnslu máls á 1. stigi, gefa til kynna að þörf sé á málstjórn þá fer beiðni um samþættingu þjónustu til úthlutunar hjá barnateymi velferðarþjónustu.
Hlutverk málstjóra er að leiða saman stuðningsteymi og leggja grunn að stuðningsáætlun í samvinnu við foreldra og barn í takt við væntingar, þarfir og óskir.
Í stuðningsteymi eru ásamt foreldrum gjarnan fulltrúar frá þjónustukerfum barnsins s.s. umsjónarkennari, fulltrúar stoðþjónustu skólans, frístunda- skóla-, velferðar og heilbrigðisþjónustu ásamt sjálfstætt starfandi sérfræðingum.
Á teymisfundum stuðningsteymis er farið yfir hvernig staðan er á samþykktum verkefnum og hvort leiðsögn og stuðningsúrræði eru að styðja við farsæld barns og fjölskyldu. Jafnframt er þörfin fyrir samþætta þjónustu metin og endurskoðuð í takt við þarfir á hverjum tíma. Málstjóri getur lagt til við forsjáraðila og stuðningsteymi að færa málið aftur til tengiliðar á 1. stigi þegar markmiðum stuðningsáætlunar hefur verið náð.
Málastjóri
Tengiliðir og málstjórar hafa hagsmuni barnsins ávallt að leiðarljósi með því að styðja það til þátttöku í allri ákvarðanatöku um farsæld þess eins og kostur er.