Árborgarstrætó keyrir eftir uppfærðu leiðarkerfi miðvikudaginn 23. september
Uppfært leiðarkerfi Árborgarstrætó tekur gildi miðvikudaginn 23. september nk. Fyrsta ferð samkvæmt nýju leiðarkerfi hefst kl. 7:00 að morgni til frá N1 á Selfossi.
Endurskoðun á leiðarkerfi Árborgarstrætó hefur staðið yfir undanfarna mánuði með það að markmiði að einfalda akstursleiðina, fækka stoppistöðvum og stytta aksturshringinn.
Samhliða var samspil Árborgarstrætó og tómstundaaksturs endurskoðað. Tómstundabíll milli byggðarkjarna er nú sérstök leið og því ótengdur reglubundnum akstri Árborgarstrætó.
Grunnmarkmið Árborgarstrætó er að vera valmöguleiki í samgöngum milli byggðarkjarna og helstu þjónustustaða fyrir íbúa Árborgar.
Leiðarkerfið er lifandi skjal sem getur þróast og breyst í takt við notkun, þarfir íbúa og ábendingar. Allar breytingar verða kynntar sérstaklega til að tryggja sem minnstar truflanir fyrir notendur.
Á hverri stoppistöð verður skjal sem vísar notendum á gildandi tímatöflur Árborgarstrætó.
Einnig má sjá þær tímatöflur sem taka gildi 23. september hér að neðan.
Sveitarfélagið Árborg hvetur íbúa til að senda inn ábendingar um það sem gengur vel og það sem mætti betur fara. Best er að koma ábendingum á framfæri í gegnum "Ábendingagátt" sveitarfélagsins.
Með þessum breytingum er stefnt að því að gera þjónustuna einfaldari og skilvirkari.
Við hlökkum til að fylgjast með hvernig nýja leiðarkerfið nýtist íbúum og hvetjum ykkur til að koma ábendingum ykkar á framfæri.




