Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborg 2024 - 2027
Bæjarstjórn Árborgar kjörtímabilið 2022 - 2026 leggur nú þann 13. desember fram fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2024.
Um leið er lögð fram þriggja ára áætlun í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B hluta fyrir árin 2025 - 2027.
Fjárhagsáætlunin er lögð fram til seinni umræðu með jákvæða niðurstöður upp á kr. 34.839.000- sem er ánægjulegt skref í rétta átt að teknu tilliti til ytri efnahagsaðstæðna og stöðu sveitarfélagsins í dag. Veltufé frá rekstri er áætlað kr. 2.342.930- á samstæðu sveitarfélagsins og framlegðarhlutfallið verði 16,1 prósent sem er hækkun um 9,2 prósent frá útkomuspá fyrir árið 2023.
“Þrátt fyrir jákvæða niðurstöðu og þann góða árangur sem er að nást verður áfram unnið á nýju fjárhagsári í hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins ásamt því að skapa frekari tækifæri til aukinnar tekjuöflunar á næstu árum” segir Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri.
Helstu upplýsingar úr fjárhagsáætlun 2024
- Afgangur verður af rekstri A- og B hluta, 34,8 m.kr.
- Veltufé frá rekstri verður jákvætt um 2,3 m.kr. eða 12,1% af heildartekjum
- Framlegðarhlutfall verður um 16,1%
- Áætlað er að fjárfesta á árinu 2024 fyrir um 1,6 milljarð en sala eigna umfram áætlun geti verið varið til aukinnar fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum
- Hækkun á gjaldskrám er að jafnaði um 7,7% til samræmis við verðlagsbreytingar
- Álagningarhlutfall útsvars hækkar um 1,474 prósentustig í samræmi við samkomulag sveitarfélagsins við Innviðaráðuneytið og verður 16,214%
- Álagningarhlutfall fasteignaskatts hækkar um 0,046 prósentustig af fasteignamati íbúðarhúsnæðis og 0,05 prósentustig af atvinnuhúsnæði. Lóðarleiga helst óbreytt milli ára.
- Gert er ráð fyrir að íbúar verði um 11.850 í byrjun árs 2024, íbúafjölgun ársins er því um 5,1%
Ábyrgur rekstur í krefjandi umhverfi
Í fjárhagsáætlun 2024 er áfram lögð áhersla á að standa vörð um grunnþjónustu við íbúa. Mennta- og velferðarmál og áframhaldandi innleiðing laga um þjónustu í þágu farsældar barna eru því í lykilhlutverki. Frístundastarf barna er þar á meðal og verður áfram í boði frístundastyrkur fyrir börn búsett í Árborg. Sú breyting verður gerð að 4 ára börn eigi líka rétt á frístundastyrk árið 2024. Börn 4 - 5 ára fái þá frístundastyrk að upphæð 20 þúsund en 6 - 17 ára að upphæð 45 þúsund.
Hluti af aðgerðum Bæjarstjórnar Árborgar til að ná þeim fjárhagslegu markmiðum sem koma fram í samningi sveitarfélagsins við Innviðaráðuneytið felur því miður í sér hækkun á hluta fasteignagjalda á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði ásamt álagi á hámarksútsvar upp á 1,474 prósentustig árið 2024. Almennar gjaldskrárhækkanir sveitarfélagsins eru síðan í takti við forsendur fjárhagsáætlunar og verðbólguvæntingar næsta árs.
Framkvæmdaáætlun styðji við uppbygginguna
Fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins endurspeglar forgangsröðun framkvæmda til að draga úr fjárþörf en um leið tryggja að grunn innviðir mæti þörfum íbúa og fyrirhugaðri fjölgun næstu árin.
Helstu framkvæmdir ársins 2024 eru áframhaldandi uppbygging Stekkjaskóla, bygging þjónustuíbúða fyrir fatlað fólk við Nauthaga, göngu- og hjólastígur við Eyrarbakka og Stokkseyri, gatnagerð í Björkurstykki, hreinsistöð í Geitanesi og jarðboranir Selfossveitna eftir heitu vatni. Unnið verður markvisst að viðhaldi fasteigna og gatnakerfis í öllum byggðakjörnum sveitarfélagsins en mikilvægt er að sinna viðhaldi þótt fjárhagsstaðan sé erfið.
Óbreytt þóknun bæjar- og nefndarfulltrúa
Bæjarstjórn Árborgar vill stíga fram með góðu fordæmi í erfiðum hagræðingaraðgerðum innan Sveitarfélagsins Árborgar. Ákveðið hefur verið að þóknun bæjar- og nefndarfulltrúa haldist óbreytt milli ára og hækki því ekkert árið 2024. Samhliða þessu verði haldið áfram að horfa til möguleika á sameiningu nefnda og starfshópa ásamt fækkun funda, án þess þó að það hafi veruleg áhrif á afgreiðsluhraða stjórnsýslunnar.
Mikilvægt er að það sé gott samspil milli stjórnsýslunnar og atvinnulífsins og afgreiðsla nefnda sveitarfélagsins sé skilvirk en um leið vönduð.
Horfum björtum augum fram á veginn
Það dylst engum að aðstæður eru erfiðar og þær álögur og gjaldskrárhækkanir sem koma fram í fjárhagsáætlun séu verulega íþyngjandi fyrir íbúa. Mikilvægt er að halda áfram að leita til hagræðingar og nýta fjármagn bæjarins sem best. Bæjarfulltrúar og starfsfólk sveitarfélagsins munu áfram taka höndum saman við það verkefni svo sveitarfélagið geti áfram veitt góða þjónustu við íbúa.
“Það má síðan ekki gleyma þeim tækifærum sem búa í samfélaginu. Árborg hefur verið í örum vexti síðastliðin ár og því er það sveitarfélaginu afar dýrmætt að rógróin fyrirtæki auka umsvif sín og byggja upp til framtíðar auk þess sem ný fyrirtæki eru sífellt að bætast við flóruna. Fjölbreytt byggingaráform eru í farvatninu og mikil trú er á svæðinu. Uppbygging við miðbæ Selfoss er að hefjast að nýju sem mun fjölga enn frekar atvinnutækifærum á svæðinu. Við erum bjartsýn á að ná utan um reksturinn á næstu árum og höldum ótrauð áfram þó að tímabundið blási á móti. ” segir Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar.
Nánari útskýring á fasteignagjöldum, útsvari og gjaldskrárhækkunum
Fasteignagjöld skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, fráveitu- og vatnsgjalda og sorphirðugjalda.
Fasteignaskatturinn hækkar á milli ára um 0,046 prósent af fasteignamati íbúðarhúsnæðis og 0,05 prósent af atvinnuhúsnæði. Lóðarleiga mun haldast óbreytt milli ára.
Fráveitugjaldið er 0,10 prósent af fasteignamati en hækkar í 0,18 prósent árið 2024 ásamt því að vatnsgjald fer úr 0,15 prósentum í 0,172 prósent.
Sorphirðugjaldið hækkar um 3% milli ára sem er undir almennu verðlagi en vel hefur gengið að innleiða nýtt flokkunarkerfi. Góð flokkun íbúa skilar sveitarfélaginu auknum tekjum úr úrvinnslusjóði sem um leið hefur jákvæð áhrif á sorphirðugjaldið.
Útsvar fyrir árið 2024 verður hækkað í 16,214 prósent. Almennar gjaldskrárhækkanir verða 7,7 prósent sem er í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar.
Afslættir
Sérstakur afsláttur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega verður veittur við álagningu fasteignaskatts og fráveitugjalds á íbúðarhúsnæði skv. reglum þar um.
Veittir verði afslættir til félaga sem starfa að menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og frístundarstarfsemi eða vinna að mannúðarstörfum og reka eigið húsnæði eða leigja til lengri tíma en eins árs fyrir starfsemina skv. reglum þar um.
Verðlag og aðrar forsendur:
Verðbólga 5,6%
Íbúafjöldi:
Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa sem nemur 3% á árinu 2024 og að jafnaði um 4% árin 2025 - 2027
Brú til betri vegar - stöðuyfirlit fyrir árið 2023