Gleðilega hátíð | Jólakveðja frá bæjarstjóra
Sveitarfélagið Árborg óskar starfsfólki sínu og íbúum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Nú þegar jólin eru að ganga í garð og jólasveinarnir komnir til byggða þá virðist alltaf vera styttra og styttra á milli jóla
Búið er að tendra jólatré á hinum ýmsu stöðum í sveitarfélaginu og fallegar jólaskreytingar prýða fyrirtæki og heimili sem aldrei fyrr.
Þegar horft er yfir árið er margt sem á dagana hefur drifið og þó að fjármál sveitarfélagsins hafi oftast verið í brennidepli og það verkefni á köflum mjög krefjandi þá hefur þetta ár einnig verið ótrúlega fjölbreytt og gefandi með öllu því frábæra starfsfólki sem starfar mér við hlið.
Í ört stækkandi sveitarfélagi vex mannauðurinn jafnt og þétt og fjölbreytni og víðsýni eykst
Samfélagið verður fjölbreyttara þegar kemur að mannlífi, atvinnuháttum, þjóðerni og menningu en skólinn og samfélagið eru samofin heild. Skólarnir nýta sér þá auðlind sem samfélagið er með því að vera í góðum samskiptum með það að markmiði að byggja upp jákvæða samfélagsvitund nemenda sem er jafn mikilvæg og allt annað nám.
Skólar gegna mikilvægu hlutverki fyrir öll samfélög
Því er mikilvægt að stjórnendur menntamála, sveitarstjórnarfólk, íbúar sveitarfélagsins og stefnumótandi aðilar geri sér grein fyrir mikilvægi skóla í minni þéttbýliskjörnum sem og þeim stærri. Skólar í litlum samfélögum eru oft „límið'' sem bindur samfélögin saman og forsenda þess að það haldist gangandi. Því tel ég mikilvægt að við sem samfélag leitum allra leiða til að halda í fjölbreytileika í skólastarfi en fámennir skólar eru mikilvægur hluti af skólaflórunni.
Það er alltaf mikið gleðiefni þegar nýr grunnskóli opnar í hverju sveitarfélagi en starfsemi Stekkjaskóla í nýrri skólabyggingu hófst í mars síðastliðnum og ber það merki um vöxt og blómstrandi mannlíf sem er sannarlega staðreyndin hér í Sveitarfélaginu Árborg. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verða verklok 2.áfanga að veruleika haustið 2024.
Þá voru samningar undirritaðir við Hjallastefnu um rekstur leikskólans Árbæjar á Selfossi frá og með 1. ágúst 2024. Með Hjallastefnuleikskóla erum við að auka fjölbreytni í leikskólastarfi og auka valfrelsi foreldra. Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Nýtt leikskólahúsnæði við Stekkjaskóla var tekið í notkun í ágúst síðastliðnum og með því fjölgaði leikskólaplássum í sveitarfélaginu um þrjátíu. Mikil gróska hefur verið í leikskólum sveitarfélagsins og má þar nefna þróunarverkefni á milli allra leikskóla Árborgar sem og fjölmörg önnur verkefni sem eftir er tekið á landsvísu.
Samstarfsverkefni félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz og velferðarþjónustu Árborgar hlaut Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2023 í flokknum framúrskarandi þróunarverkefni
Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin fara til félagsmiðstöðvar og undirstrikar það mikilvægi félagsmiðstöðvarstarfs fyrir börn og unglinga og hversu framarlega við erum hér í Árborg á þessu sviði. Verkefnið sýnir vel hvað þverfaglegt samstarf í anda nýrrar löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsæld barna er mikilvægt til að koma til móts við börn og unglinga, eins snemma og unnt er. Fjölskyldusvið Árborg gegnir leiðandi hlutverki á landsvísu í samvinnu við Barna- og fjölskyldustofu, í að innleiða stigskipta farsældarþjónustu í þágu farsældar barna sem sýnir metnað og dugnað fjölskyldusviðs sveitarfélagsins.
Á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl. bauð forseti Íslands félagi kennara sem kenna íslensku sem annað mál, til hátíðlegrar athafnar á Bessastöðum. Átti Sveitarfélagið Árborg þar verðugan fulltrúa en Aneta Figlarska kennsluráðgjafi og sérfræðingur í fjölmenningu hjá skólaþjónustu Árborgar var ein af gestum forseta.
Ég er virkilega stolt af því faglega starfi sem unnið er í sveitarfélaginu á öllum sviðum og þreytist ekki á að halda því á lofti.
Á
árinu voru haldin fjölmörg íþróttamót í sveitarfélaginu, allt frá Íslandsmótum
yfir í minni félagsmót en öll eiga þau það sameiginlegt að einstaklega vel var
að þeim staðið og ánægja í hvívetna. Þá voru fjölmörg
börn, unglingar og ungmenni sem unnu til verðlauna og áttum við
fulltrúa á verðlaunapalli á Íslands- Evrópu- og Heimsmeistaramótum í hinum ýmsu
greinum að ógleymdum glæsilegum árangri okkar fólks
á Special Olympics í Berlín.
Menningin blómstraði sem aldrei fyrr með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í fararbroddi
Haldnir voru menningarviðburðir fyrir allan aldur auk þess sem allt kóra- og safnastaf óx og dafnaði. Íbúar sveitarfélagsins héldu uppi viðtekinni venju og mættu á viðburði og útihátíðir langt fram á haustið og fundu sem flest tilefni til að gera sér glaðan dag.
Á síðustu mánuðum hefur verið í undirbúningi virkjun á heitavatnsholunni SE-40 sem var lokið við að bora í byrjun árs 2023 og gefur hún töluvert af heitu vatni. Unnið er að því að skipta út hitaveitulögn á Ölfusárbrú, draga út gamla DN 100 lögn sem er á brúnni og setja nýja DN 200 lögn í staðinn. Með þessu eykst flutningsgeta selfossveitna bs. töluvert sem er mikilvægt fyrir framtíðar uppbyggingu í sveitarfélaginu öllu. Þá hefur bæjarráð samþykkt framkvæmdaleyfi um rannsóknarboranir á fjórum stöðum sunnan Ölfusár.
Það væri að æra óstöðugan að ætla að fara yfir allt það sem á dagana hefur drifið á þessu viðburðaríka ári en mig langar að segja að lokum að framtíðarhorfur okkar sveitarfélags eru góðar!
Íbúar og forsvarsmenn fyrirtækja horfa framtíðina björtum augum. Hér höfum við í gegnum tíðina tekist á við náttúruhamfarir af ýmsum toga og mætum þeim áskorunum sem Sveitarfélagið Árborg stendur frammi fyrir um þessar mundir af raunsæi, ábyrgð og festu.
Með stórhuga áætlunum ríkisstjórnarinnar um nýja Ölfusárbrú hefur áhugi fyrirtækja á sveitarfélaginu aukist mikið og því mikilvægt að nýta þau tækifæri sem felast í þeirri uppbyggingu og fjárfestingum sem nú þegar hafa átt sér stað. Árborg er í dag heitur reitur í ferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og mannlífi á Suðurlandi.
Ég er sannfærð um að okkur mun ekki skorta spennandi verkefni og ögrandi áskoranir á nýju ári. Sjálf hef ég mikla trú á svæðinu og ef fram heldur sem horfir verður Árborg orðin “stórborg“ fyrr en varir.
Kæru íbúar og vinir ég óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, með kæru þakklæti fyrir samstarfið og samvinnuna á árinu sem er að líða
Megi jólin verða okkur öllum gleðileg og gjöful. Njótum aðventunnar og njótum samverunnar með okkar mikilvægasta fólki en umfram allt sýnum hvort öðru kærleika og umburðarlyndi.
Ást og friður.
Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri