Íþróttafólk Árborgar 2023
Á morgun, fimmtudaginn 28. desember fer fram uppskeruhátíð fræðslu- og frístundanefndar Árborgar sem haldin verður á Hótel Selfossi kl. 19:30.
Á hátíðinni verður tilkynnt um íþróttafólk Árborgar 2023. Alls eru 24 efnilegir einstaklingar tilnefndir. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum á árinu sem er að líða auk hvatningarverðlauna. Á uppskeruhátíðinni verða að auki tónlistaratriði og boðið verður upp á kaffiveitingar.
Fólk er hvatt til að mæta og styðja við og fagna með öllu því flotta íþróttafólki sem er í Árborg.