Leikskólinn Árbær verður Hjallastefnuleikskóli
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 25. október að Hjallstefnan leikskólar ehf. taki yfir rekstur leikskólans Árbæjar frá 1. ágúst 2024.
Hjallastefnan tekur yfir daglega stjórn leikskólans frá 2. nóvember 2023
Starfsfólk leikskólans hefur verið tillkynnt þessi breyting og boðað hefur verið til kynningarfundar fyrir foreldra barna í Árbæ.
Samningur verður undirritaður þann 1. nóvember. Foreldrar munu greiða sömu leikskólagjöld og þjónusta frá fjölskyldusviði Árborgar mun vera með sama hætti og í öðrum leikskólum Árborgar.
Í Árborg eru reknir sex leikskólar. Í nýlegri foreldrakönnun var meirihluti foreldra sem höfuðu jákvætt viðhorf til að geta valið leikskóla sem starfar eftir hugmyndafræði Hjallastefnunar í Árborg.