Lífrænn úrgangur | Ný karfa & nýir pokar
Frá áramótum tekur við ný meðferð á lífrænum eldhúsúrgangi og frá þeim tíma má ekki setja maíspoka í lífræna úrganginn.
Ástæða þess er sú að lífræni úrgangurinn fer í moltugerð hjá Gas- og jarðgerðarstöð Gaju á Álfsnesi. Sú stöð tekur ekki við maíspokum þar sem þeir geta valdið vandræðum í vélbúnaði stöðvarinnar.
Frá áramótum á því ekki að nota maíspokana fyrir lífrænan úrgang heldur eingöngu bréfpoka
Allir íbúar geta nú nálgast nýja körfu og eitt búnt (80 stk.) af bréfpokum á eftirtöldum stöðum í desember á opnunartíma:
- Ráðhús Árborgar, Austurvegi 2
- Mannvirkja- og umhverfisvið, Austurvegi 67
- Gámasvæði Árborgar, Víkurheiði 4
- Bakkinn, Eyrarbakka
- Skálinn, Stokkseyri
Mynd: Íslenska Gámafélagið - MatHilda ný karfa fyrir matarleyfar