Ljúf og notaleg jóladagskrá í Byggðasafni Árnesinga
Aðventan er alltaf hátíðleg í Húsinu á Eyrarbakka þar jólaandinn ræður ríkjum og hæfileikafólk kemur í heimsókn með bókaupplestur og ljúfa tónlist.
Gestir njóta þess að skoða jólasýninguna, taka þátt í jólaleik og setjast niður og föndra músastiga
Í safnbúð verður kærleikskúla Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra til sölu og rennur allur ágóði sölunnar til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
Jólasýning safnsins opnar í Húsinu á Eyrarbakka sunnudaginn 26. nóvember og verður opið á safninu tvær næstu helgar (02. - 03. og 09. - 10. des.)
Safnið er opið fyrir hópa eftir samkomulagi allt árið. Hægt er að panta séropnun með tölvupósti á info@byggdasafn.is eða í síma 483 1504 / 483 1082.
Dagskrá:
Jólasýning
Jólasýning safnsins verður opin kl. 13:00 til 17:00 sunnudaginn 26. nóv. og helgarnar 2. - 3. des. og 9. - 10. des.
Aðgangur ókeypis og opin músastigasmiðja alla daga.
Skáldastund
Sunnudaginn 26. nóvember, kl. 16:00, lesa rithöfundar úr nýútkomnum verkum sínum í stássstofunni. Í ár heimsækja Húsið þau Jónína Óskarsdóttir, Lilja Árnadóttir, Nanna Rögnvaldardóttir, Ófeigur Sigurðsson og Sölvi Björn Sigurðsson.
Stofutónleikar
Sunnudaginn 3. desember, kl. 16:00, verða töfrandi stofutónleikar með Kiru Kiru í stássstofu Hússins.
Jólaglugginn afhjúpaður hjá Byggðasafni Árnesinga og nýr bókstafur í jólaleiknum birtist.
Barnabókastund
Sunnudaginn 10. desember, kl. 16:00, munu Stjörnu-Sævar og Örn Árnason, afi allra landsmanna, leiða saman hesta sína. Það verður án efa líf og fjör!
Uppbyggingarsjóður Suðurlands styrkir jóladagskrá Byggðasafns Árnesinga