Lokanir og tilkynningar vegna veðurs | uppfært
Eftir fund með Almannavörnum hefur verið ákveðið að stofnanir sveitarfélagsins verða lokaðar fram til kl. 12:00
Uppfært - 07.02.2022
Stofnanir sveitarfélagsins verða opnar frá kl. 12:00 í dag, mánudag. Sendar verða nánari upplýsingar með tölvupóst til foreldra varðandi leikskóla og frístund. Hádegisverður verður ekki í boði í dag. Grunnskólar sveitarfélagsins verða lokaðir í dag.
Suðaustan rok eða ofsaveður með snjókomu og skafrenningi (Rautt ástand)
Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands má búast við suðaustan 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni. Miklar líkur á foktjóni og samgöngutruflunum. Fólki er ráðlagt að ganga vel frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framvkæmdasvæðum.
Akstur fellur niður með Árborgarstrætó.
Verðustofan hefur gefið út viðvörun vegna ofsaveðurs mun allur akstur falla niður í fyrramálið, mánudaginn 7. febrúar. Í fyrramálið verður metið hvort og hvenær hægt verður að hefja akstur fyrir daginn. Þetta á við um allan skólaakstur, sundakstur, ferðaþjónustu fatlaðra og strætó.
Við bendum öllum á að hægt er fylgjast með færð á vegum á síðu Vegagerðarinnar.
Rauðar, appelsínugular og gular viðvaranir í gildi fyrir svæðið mánudaginn 07. febrúar og eru vegfarendur beðnir um að nýta sunnudaginn til langferða því búist er við ófærð og lokunum á morgun.
Sjá nánar á síðu Vegagerðarinnar.