Samþykkt að hefja endurskoðun á aðalskipulagi Árborgar
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti samhljóða á fundi sínum 2. september sl. að hefja endurskoðun á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar.
Aðalskipulag Árborgar tók gildi sumarið 2022 en þegar talað er um aðalskipulög er átt við áætlanir sem sýna stefnu sveitarfélagsins m.a. um landnotkun, byggðaþróun og umhverfismál til minnst tólf ára í senn.
Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið hratt á undanförnum árum og því taldi bæjarstjórn mikilvægt að rýna skipulagið aftur og uppfæra hluta þess til samræmis við breyttar áherslur, byggðaþróun, atvinnuuppbyggingu og samgöngur innan sveitarfélagsins til framtíðar.
Skipulagsnefnd Árborgar mun í kjölfar ákvörðunarinnar leggja fram drög að vinnuáætlun og því hvaða kaflar aðalskipulagsins verði uppfærðir. Í vinnuferlinu mun íbúum, fyrirtækjum og öðrum hagaðilum gefast tækifæri til að koma með ábendingar, umsagnir og fyrirspurnir.
Fram undan eru gríðarleg tækifæri á svæðinu og því mikilvægt að stefna bæjarstjórnar sé skýr og endurspeglist í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Slíkt eykur gagnsæi og auðveldar m.a. framkvæmdaraðilum að sjá hvert íbúðabyggð og atvinnusvæðum er ætlað að þróast á næstu árum.

