Menningarganga listamanna í Árborg
Menningarmánuðurinn október býður upp á fjöldan allan af spennandi viðburðum sem endurspegla grósku og sköpunarkraft í ört stækkandi sveitarfélagi.
Laugardaginn 14. október verður Menningarganga listamanna haldin í annað sinn og er einn af hápunktum mánaðarins. Listafólk í sveitarfélaginu opna vinnustofur sínar og gallerí fyrir gestum, leyfa fólki að líta við og skoða afrakstur sköpunnar sinnar. Auk listamanna taka Gallerí Listasel, Tískuvöruverslunin Lindinn á Selfossi, Skrúfan á Eyrarbakka og Brimrót á Stokkseyri þátt í deginum.
Menningarganga Árborgar var afar vel sóttur viðburður á síðasta ári en þá var hún haldin í fyrsta sinn
Laugardaginn 14. október 2023 verður gestum boðið að njóta listar á 17 stöðum víðs vegar um sveitarfélagið, á Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri.
Hátt í hundrað listamenn bjóða gestum að upplifa fjölbreytt listform
Málaralist, leirlist, fagurlegra hannaða skartgripi, ljósmyndir og útskurður. Auk þess býðst þátttakendum að hlýða á sögur og hlusta á fallega tóna.
Með Menningargöngu listamanna sýna listamenn í verki þann vilja að sameina krafta þeirra frábæru listamanna sem búa í Árborg og bjóða íbúum Árborgar, ferðamönnum og þjóðinni allri að bregða undir sig betri fætinum og gera sér dagamun í #menningarborg.
Fyrir Menningargönguna 2022 var stofnuð Facebooksíðan „Menningarvitar í Árborg“ sem vettvang fyrir listamenn og áhugafólk um listir og menningu til að miðla og njóta gróskumikils menningarlífs í sveitarfélaginu. Áhugasamir um menningarlíf í Árborg eru hvattir til að fylgja síðunni.
Aðgangur á alla viðburði Menningargöngu listamanna er ókeypis.
Umsjón með Menningargöngu listamanna | Auður allt árið
Frekari upplýsingar veitir Auður I. Ottesen | audur@rit.is | 824 0056