Niðurfelling gjalda í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum Sveitarfélagsins Árborgar á tímum samkomubanns.
Á meðan tilmæli frá yfirvöldum varðandi samkomubann varir var niðurfelling gjalda samþykkt í bæjarráði 19. mars 2020.
Á meðan ofangreint ástand varir var eftirfarandi samþykkt í bæjarráði 19. mars 2020 :
- Leikskólagjöld verða endurgreidd eða felld niður þá daga sem barn mætir ekki í leikskóla.
- Fæðisgjöld í leikskóla eru endurgreidd eða felld niður fyrir þá daga sem barn mætir ekki.
- Ekki er greitt fæðisgjald í skólum fyrir þá daga sem nemendur mæta ekki í skólann.
- Ekki er greitt fæðisgjald í grunnskólum fyrir þá daga sem skóli býður ekki upp á fæði.
- Gjöld fyrir frístundaheimili falla niður þá daga sem barn mætir ekki.
Ofangreint á bæði við ef foreldrar/forráðamenn eru beðnir um að hafa börn sín heima eða ákveða sjálfir að hafa börn sín heima.
Ofangreint gildir frá og með 16. mars 2020.