Niðurstaða útboðs á byggingarétti á iðnaðarlóðum
Á fundi bæjarráðs þann 5. október sl. var lögð fram niðurstaða útboðs á sölu byggingarréttar á iðnaðarlóðum að Víkurheiði á Selfossi.
Sveitarfélagið Árborg auglýsti átta lóðir og bárust tilboð í þrjár, Víkurheiði 19, 21 og 22
Öll tilboðin voru yfir lágmarksverði og samþykkti bæjarráð þau tilboð sem bárust. Sviðstjóra Mannvirkja- og umhverfissviðs var um leið falið að semja við hæstbjóðanda hverrar lóðar.
Byggingaréttur fyrir lóðir að Víkurheiði 3, 5, 13, 18 og 20 er áfram til sölu hjá sveitarfélaginu og geta áhugasamir haft samband í gegnum tölvupóstfangið skipulag@arborg.is.
Niðurstaða útboðs á byggingarétti að Víkurheiði:
Bjóðandi | Bjóðandi | Bjóðandi | |||
Lóð nr. | Pro-garðar ehf. | Akrasel ehf. | Táta ehf. | Lágmarksverð | % |
19 | 17.500.005 | - | - | 15.000.000 | 117% |
21 | - | - | 21.000.000 | 20.000.000 | 105% |
20 | - | - | - | 21.500.000 | - |
22 | - | 25.150.000 | - | 21.600.000 | 116% |
3 | - | - | - | 18.000.000 | - |
5 | - | - | - | 30.000.000 | - |
13 | - | - | - | 28.600.000 | - |
18 | - | - | - | 21.500.000 | - |