Norræn menningarhátíð heyrnarlausra á Selfossi 29. júlí – 2. ágúst
Framundan er Norræn menningarhátíð heyrnarlausra og von er á að minnsta kosti 250 gestum frá Færeyjum, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Grænlandi og Íslandi.
Hátíðin sem þessi er haldin á fjögurra ára fresti og ferðast á milli Norðurlandanna. Síðast var hún hér á landi árið 2006 og þá haldin á Akureyri. Það er afar ánægjulegt að Selfoss hafði orðið fyrir valinu að þessu sinni og það verður gaman að sjá ýmis táknmál víðsvegar um bæinn þessa daga. Og eins og þau segja sjálf:
“Ef þið rekist á hóp af fólki sem er að tákna af miklum krafti, þá er engin ástæða til að hafa áhyggjur, þau eru bara að spjalla, hlæja og njóta lífsins.”
Hér fyrir neðan má sjá Júlíu Hreinsdóttur útskýra af hverju táknmálstáknið fyrir Selfoss er eins og það er:

