Sveitarfélagið Árborg samþykkir að afnema byggingarréttargjöld af atvinnulóðum
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 16.júlí 2026, endurskoðun samþykktar á gatnagerðar- og byggingarréttargjöldum. Byggingarréttargjöld eru afnumin af atvinnulóðum og lækkuð af íbúðarlóðum.
Sveitarfélagið Árborg hefur haft samþykkt um gatnagerðar- og byggingarréttargjöld til endurskoðunar með það að markmiði að einfalda gjaldskrá, auka sveigjanleika í greiðslum af íbúðarlóðum og hvetja til uppbyggingar atvinnulóða.
Sveitarfélagið vill sýna ábyrgð og leggja sitt af mörkum til að draga úr byggingarkostnaði og auka uppbyggingu atvinnustarfsemi á svæðinu.
Helstu breytingar í samþykktinni:
Byggingarréttur af atvinnulóðum fellur út og gatnagerðargjöld sem lækkuðu um helming árið 2025 haldast óbreytt
Tímabundið ákvæði þar sem Selfossi var skipt upp í tvö svæði, fellur alfarið út
Gjaldskrá byggingarréttar af íbúðarlóðum lækkar og skiptist í tvö svæði
Svæði 2 er Eyrarbakki, Stokkseyri og dreifbýli, greiðsla byggingarréttar lækkar úr 25 þ.kr/m2 í 10 þ.kr/m2
Lóðarhafar íbúðalóð greiða í upphafi aðeins 70% af álögðu byggingarréttargjaldi miðað við hámarksbyggingarmagn lóðar í deiliskipulagi.
Nánar má lesa um þetta hér

