Selfossveitur fá framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborholum
Bæjarráð Árborgar hefur samþykkt ósk um framkvæmdaleyfi frá Selfossveitum um rannsóknarboranir á fjórum stöðum sunnan við Ölfusá.
Fyrirhugað er hjá Selfossveitum að fara í rannsóknarboranir á eftirtöldum svæðum líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd hér að neðan:
- Hola A á svæði norðan Selfossvegar (við Hótel Selfoss)
- Hola B við enda Hellu- og Laxabakka
- Hola D og E við Geitanes.
Um er að ræða tvíþætt verkefni sem fellst bæði í að kanna möguleg ný orkuöflunarsvæði við holur D og E sem og til frekari vinnslu við holur A og B.
Það er eitt af forgangsverkefnum sveitarfélagsins að tryggja næga orku til framtíðar og eru þessar framkvæmdir hluti af því verkefni.
Íbúar þurfa því ekki að láta sér bregða á næstu vikum þegar boranir hefjast á þessum svæðum.