Skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum 11.7.2024 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 á Selfossi.
Samkvæmt 30. gr. með vísan í 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt eftirfarandi skipulagstillaga:
- Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar II. á ASK 2024 – Tillaga
Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum 11.7.2024 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 á Selfossi. Breytingin er samþykkt í samræmi við 30, og 36 gr. skipulagslaga nr.123/2010 .
Breytingin felur m.a. í sér að austurvestur flugbrautin á Selfossflugvelli er stytt svo hún sé aðeins á landi í eigu Sveitarfélagsins Árborgar en ekki á landi í einkaeigu. Sömuleiðis er opna svæðið OP1 minnkað og verður aðeins á landi í eigu sveitarfélagsins. Þéttbýlismörkum Selfoss er breytt til samræmis. Landbúnaðarland L2 er stækkað yfir það svæði sem var opið svæði og flugvöllur.
Breytingar eru eftirfarandi:
- Selfossflugvöllur. Vesturbraut flugvallarins er stytt, tekin er út sá hluti hennar sem er á landi í einkaeigu. Hindranaflötum er breytt til samræmis.
- Opið svæðið OP1 er minnkað norðan Selfossflugvallar og verður aðeins á landi í eigu sveitarfélagsins.
- Landbúnaðarsvæði L2 er stækkað yfir það svæði sem var opið svæði og flugvöllur.
- Þéttbýlismörkum Selfoss er breytt og aðlöguð að breyttri afmörkun Selfossflugvallar og opins svæðis.
- Kjallarar á Selfossi. Heimilt verður að vera með bílakjallara á Selfossi og gildir það líka um flóðasvæði, en kjallarar á slíkum svæðum skulu uppfylla tiltekin skilyrði.
- Lóðin Austurvegur 20 verður öll miðsvæði. Í dag er um helmingur hennar samfélagsþjónusta.
Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda
skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum.
Gerð er breyting á greinargerð og uppdráttum:
Gildandi og breyttur aðalskipulagsuppdráttur fyrir Selfoss, í mkv. 1:10.000.
Ásamt breyttum uppdrætti fyrir dreifbýli í mkv. 1:50.000. Greinargerð með
forsendum og umhverfismatsskýrslu.
Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýst eftirfarandi breyting á deiliskipulagstillögu:
2. Grundarhverfi Selfossi - Furugrund 24B - Breyting og lagfæring á deiliskipulagi íbúðabyggðar
Bæjarráð Árborgar samþykkti þann 11.7.2024 tillögu að breyttu og lagfærðu deiliskipulagi fyrir ,,Grundarhverfið“ á Selfossi. Deiliskipulag fyrir hverfið í heild er frá árinu 1994. Núverandi skipulag lóða og gatna í hverfinu er ekki í samræmi við skipulagið frá 1994. Breytt skipulag sem nú er lagt fram, tekur til skipulags gatna og lóða eins og hverfið er í núverandi mynd. Þá er bætt við einni byggingarlóð sem var áður skilgreint sem nær-leiksvæði. Breytingar á uppdrætti og í greinargerð eru eftirfarandi:
- Raðhúsalóðin Grenigrund 18 - 24 verður 18 - 24A
- Birkigrund 1 - 7, 2 - 8, 11 - 17 og 34 - 40 úr raðhúsalóðum í parhúsalóðir-
- Lega götu og stíga í Furugrund löguð að raunlegu
- Lóðaskipan við Furugrund löguð að raunskipan
- Lóð fyrir leiksvæði breytt í byggingarlóð, Furugrund 24A
- Byggingarreitir endurskoðaðir á öllu svæðinu.
- Settar inn allar lóðarstærðir, nýtingarhlutfall og hámarks mænishæð
- Lóðir við Birkigrund og Furugrund sem snúa út að Langholti fá 5m viðbótarland í samræmi við samþykkt bæjarráðs um skilmála fyrir viðbótarland/-lóðir, frá 02.05.2024
- Ýmsar minni háttar lagfæringar á lóðamörkum, legu gatna og stíga.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á slóðinni www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillaga nr. 1 er í kynningu frá 17. júlí til og með 8. ágúst 2024. Þeir aðilar sem hafa athugasemdir eða ábendingar hafa frest til og með 8. ágúst 2024, til að skila inn til skipulagsfulltrúa (runarg@arborg.is), eða á www.skipulag@arborg.is.
Skipulagstillaga nr. 2 eru auglýst með athugasemdafresti frá 17. júlí 2024, til og með 29. ágúst 2024. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 29. ágúst 2024.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið www.skipulag@arborg.is
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi