Stækkun lagna í Ölfusárbrú
Á síðustu mánuðum hefur verið í undirbúnining virkjun á heitavatnsholunni SE-40 sem var lokið við að bora í byrjun árs 2023 og gefur töluvert af heitu vatni.
Eitt af áskorunum við þá virkjun er að núverandi lagnir í Ölfusárbrú eru of grannar og var ljóst að stækka þyrfti lagnirnar til að koma meira af heitu vatni yfir brúnna
Þriðjudaginn 31. október hóf Vélsmiðja Suðurlands vinnu við skipta út hitaveitulögn í Ölfusárbrú en verkið felst í því að draga út gamla DN100 lögn sem er í brúnni og setja DN 200 lögn í staðinn.
Með þessu eykst flutningsgeta í brúnni töluvert sem er mikilvægt bæði fyrir framtíðar uppbyggingu norðan ár og meiri orkuöflun.
Stefnt er að því að ljúka verkinu í nóvember en það er eitt af mörkum verkþáttum sem þarf að vinna til að hægt sé að koma vatni inn á dreifikerfi Selfossveitna.
Aðrir verkþættir eru eftirfarandi
- Lagnir frá SE-40 að brú. Verkið farið af stað og verður unnið í vetur 2023/2024
- Dælubúnaður fyrir holuna. Koma til landsins í maí 2024 og verða sett ofan í holuna
- Dælhús. Tilbúið til uppsetningar á búnaði vor 2024
- Stækkun á lögnun frá brú að dreifikerfi í Eyravegi. Unnið vor/sumar 2024
Stefnt er að því að öllum aðgerðum verði lokið haustið 2024