Stígur við Ölfusá malbikaður
Malbikunarframkvæmdir á Selfossi.
Í dag er unnið að malbikun á stíg neðan við Hótel Selfoss sem tengir betur saman gönguleiðina meðfram ánni að kirkjunni. Auk þess verða bílastæðin við ána malbikuð.
Á morgun er svo gert ráð fyrir að malbika stíg frá Ártúni að Fossvegi neðan við Eyrarveg.
Verktaki er Gröfutækni ehf.


