Sundlaugar í Árborg | Takmarkanir þriðjudaginn 24. október
Þriðjudaginn 24. október verður baráttudagur fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og engar konur á vakt í sundlaugum Árborgar.
Sundhöll Selfoss verður opin líkt og vanalega en með verulegum takmörkunum.
World Class opnar kl. 06:00 | Sundhöll Selfoss opnar kl. 06:30
Athugið eftirfarandi takmarkanir þriðjudaginn 24. október
- Karlmenn geta komið í sund, stúlkur sex ára og yngri geta komið í fylgd með einstakling 15 ára og eldri.
- Ekki verður hægt að taka á móti konum af öryggisástæðum þar sem engar konur eru á vakt.
- Kvennaklefar verða lokaðir.
- Útiklefar verða lokaðir.
- Mögulega skertur aðgangur.
- Mögulega skertur opnunartími seinnipart.
- Sundlaug Stokkseyrar verður lokuð.
Við hvetjum íbúa að fylgjast með frekari upplýsingum á miðlum sveitarfélagsins vegna takmarkana þriðjudaginn 24. október.