Vitundarvakning um málefni flóttafólks í nærsamfélagi
Sveitarfélagið Árborg hefur frá maí 2021 tekið á móti yfir 200 einstaklingum sem falla undir samræmda móttöku flóttafólks. Verkefnið spratt af reynslu beggja málstjóra í verkefninu sem ítrekað fengu til sín mál sem unnt hefði verið að leysa fyrr ef betur hefði tekist til með upplýsingagjöf og samskipti.
Algengt var að starfsfólk treysti sér ekki til að hafa samband beint við flóttafólk, ýmist vegna tungumálaörðugleika, menningarmunar eða skorts á þekkingu á því hvernig nálgast ætti fólk með flóttabakgrunn. Þá urðu málstjórar einnig varir við misskilning um réttindi og skyldur flóttafólks.
Í ljósi umræðu í samfélaginu og ákalls frá starfsfólki varð til verkefnið „Vitundarvakning um málefni flóttafólks í nærsamfélagi“. Markmið þess var að efla þekkingu, draga úr misskilningi og skapa vettvang fyrir opið samtal. Undirbúningur hófst vorið 2025 með samtali við lykilaðila um áhuga á þátttöku. Fyrsta fræðslan var haldin fyrir fjölmenningarteymi leikskóla sveitarfélagsins (mars 2025). Í kjölfarið var fræðsla veitt stéttarfélögum (apríl og maí 2025), starfsfólki frístundaheimila (ágúst 2025), starfsfólki félagsmiðstöðva og ungmennahúss (september 2025) og félagslegrar stuðningsþjónustu (nóvember 2025). Verkefninu lauk formlega í janúar 2026 og var það kynnt á málþinginu „Heimurinn er hér“ 18. nóvember 2025 og í útvarpsþættinum Samfélagið á Rás 1.
Fræðslan var aðlöguð að hverjum hópi. Hún hófst gjarnan á umræðuverkefninu „Satt eða ósatt“, þar sem þátttakendur tóku afstöðu til staðhæfinga um réttindi og stöðu flóttafólks. Markmið var að vekja þátttakendur til umhugsunar og skapa umræðu strax í upphafi. Í framhaldinu var fjallað um hugtök á borð við „flóttamaður“ og „umsækjandi um alþjóðlega vernd“, skipulag samræmdrar móttöku og hlutverk málstjóra. Rætt var um réttindi og skyldur, áskoranir í starfi og möguleg samstarfsverkefni. Reynt var að tengja umræðuefni við starfsemi þess hóps sem fræðslan var áætluð. Í lokin var tími fyrir spurningar og umræður. Fulltrúar úr hópi flóttafólks tóku þátt í tveimur fræðsluerindum og miðluðu eigin reynslu, meðal annars sem starfsfólk og foreldrar barna í frístundastarfi. Slík þátttaka reyndist sérstaklega áhrifarík.
Verkefnið skilaði fjölþættum ávinningi. Í fyrsta lagi jókst þekking og skilningur á málefnum flóttafólks í nærsamfélaginu. Starfsfólk fékk betri innsýn í stöðu, réttindi og áskoranir hópsins og upplifði aukið öryggi í samskiptum og þjónustu. Í öðru lagi stuðlaði verkefnið að valdeflingu. Annars vegar styrkti það starfsfólk í faglegu hlutverki sínu með aukinni fræðslu og umræðu. Hins vegar gaf það fulltrúum flóttafólks tækifæri til að miðla eigin reynslu og hafa áhrif á umræðuna, sem efldi rödd þeirra og þátttöku í samfélaginu. Í þriðja lagi hafði verkefnið jákvæð áhrif á samstarf og samskipti milli þjónustuaðila. Umræður leiddu til aukins gagnkvæms skilnings og komu fram hugmyndir að frekara samstarfi. Skýrt ákall kom fram um áframhaldandi fræðslu og útvíkkun verkefnisins til fleiri aðila.
Verkefnið var styrkt af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.


