Vor í Árborg 2021 | Tillögur og hugmyndir
Menningar- og bæjarhátíðin „Vor í Árborg 2020″ verður haldin 22.- 25. apríl nk. Skipulagning er hafin og hvers kyns tillögur að dagskráratriðum og/eða hugmyndum um menningarviðburði eru vel þegnar.
Hér með er óskað eftir þátttöku félaga og samtaka, einstaklinga og áhugahópa, fyrirtækja og stofnanna.
Fjölskylduleikurinn, „Gaman- saman sem fjölskylda” verður áfram hluti af hátíðarhöldunum. Sértakt vegabréf verður gefið út með dagskrá hátíðarinnar sem stimplað verður í eftir þátttöku í atburðum og heimsóknum á viðburði. Vegabréfinu er síðan skilað inn eftir hátíðina og eiga þátttakendur möguleika á veglegum vinningum.
Áhugasamir sendi póst á netfangið vor@arborg.is eða hafi samband við Ólaf Rafnar Ólafsson, atvinnu- og viðburðafulltrúa í síma 480 1900.
Með von um góðar undirtektir,
Frístunda- og menningardeild Sveitarfélags Árborgar