Samkomulag greiðir leið fyrir uppbyggingu Mjólkursamsölunnar á Selfossi
Sveitarfélagið Árborg, Mjólkursamsalan (MS) og Auðhumla hafa gert með sér samkomulag um færslu lagna og kvaðir á lóðum við Austurveg 65. Samkomulagið styður við áform MS um uppbyggingu á Selfossi og eflingu starfseminnar til framtíðar.
Samkvæmt samkomulaginu verður eldri kvöð um legu stofnlagna yfir lóð MS aflétt. Sveitarfélagið sér um færslu stofnlagna samhliða öðrum breytingum á stofnlögnum á svæðinu. MS annast og greiðir breytingar á eigin lögnum innan lóðar og greiðir gjöld vegna framkvæmda samkvæmt gjaldskrám sveitarfélagsins.
Jafnframt eiga nýjar lagnakvaðir meðal annars að tryggja aðgengi sveitarfélagsins að lögnum sem tengjast miðlunarkerfi Selfossveitna við Austurveg 67.
Með samkomulaginu er lagnafyrirkomulag og uppbyggingaráform samræmd til hagsbóta fyrir báða aðila. Það skapar skýrari forsendur fyrir framkvæmdum og styður við áframhaldandi uppbyggingu starfsemi MS á Selfossi.
Samkomulagið var undirritað af Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra Árborgar og Pálma Vilhjálmssyni, forstjóra MS.
„MS, og áður Mjólkurbú Flóamanna hefur sterka sögu á svæðinu. Sveitarfélagið Árborg vill vinna með atvinnulífinu og það er afar jákvætt að sjá metnað fyrirtækisins til framtíðar,“ sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri.


