Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Auglýsing

um breytingu á gjaldskrá Selfossveitna, nr. 210/2008, með síðari breytingum.

Samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Selfossveitna er öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Gjaldskrá Selfossveitna, nr. 210/2008 breytist þannig: 

1. hluti hljóðar svo:

1. HLUTI
Sölutaxtar, stofngjöld og innheimta.

I. Sölutaxtar.
Verð er án virðisaukaskatts.
I.a Afnot af heitu vatni.
 Almennir taxtar Einingar Grunngjald kr. 
H.1Heitt vatn um rennslismæli
 
 Heimili og íbúðirkr./m3184,4 
 Fastagjaldkr./ár22.020
H.2Heitt vatn um rennslismæli  
 Stórnotendur >1"kr./m3184,4
 Fastagjaldkr./ár31.342
Sértaxtar   
H.5Heitt vatn um hemil  
 Heitt vatn um hemilkr./mínl/ár 51.202 
 Fastagjaldkr./ár31.342
H.6 Heitt vatn um rennslismæli  
 Almenningssundlaugar  
 Sumar 1. maí - 30. septemberkr./m393,1
 Vetur 1. október - 30. aprílkr./m3112,0 
 Fastagjaldkr./ár55.193 

II. Stofngjöld hitaveitu. 

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðið gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags, t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu. 

II.a. Þéttbýlisstaðir, Eyrarbakki, Selfoss og Stokkseyri. 

Neðangreint verð gildir þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 30 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota. 

  Grunngjald kr.
Heimæð, DN 20 stál eða PEX-25 417.115
Heimæð, DN 25 stál eða PEX-32612.877
 Heimæð, DN 32 stál eða PEX-40699.574
 Heimæð, DN 40 stál eða PEX-50837.572
 Heimæð, DN 50 stál1.387.797 
 Heimæð, DN 65 stál2.289.085

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðagjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðagjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 65 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu. 

Frostálag á grunngjald: 20%

II. b. Holtabyggð, Tjarnabyggð, byggð við Votmúlaveg og bæir austan við Stokkseyri. 

Neðangreint verð gildir þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli húsnæðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota. 

 Grunngjald kr. 
 Heimæð, DN 20 stál eða PEX-25967.885
 Heimæð, DN 25 stál eða PEX-321.937.281

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðagjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðst 10% af heimæðagjaldi viðkomandi málstærðar í þéttbýli. Kostnaðarverð stærri heimæða en 25 mm stál/32 mm PEX er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu. 

Frostálag á grunngjald: 20% 

II.c. Bráðabirgðatengingar. 

  Grunngjald kr.
Bráðabirgðatenging DN 20 eða PEX-25128.665

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað. 

III. Innheimta og lokanir. 

 kr. 
Innheimtugjald1.926 
 Lokunargjald8.398
 Aðstaða ekki fullnægjandi20.656

Séu starfsmenn veitunnar kallaðir til að leggja heimtaug og aðstaða uppfyllir ekki tæknilega tengiskilmála 2021 og starfsmenn þurfa frá að hverfa, hlýst af því kostnaður sem tilgreindur er í töflu hér að ofan. 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 18. júlí 2024. 

F. h. r. 

Ólafur Darri Andrason
Hreinn Hrafnkelsson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica