Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg

Jórvík 1- Deiliskipulagsbreyting og Selfosslína 1 -breyting á legu jarðstrengs - Aðaskipulagsbreyting

Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða Bæjarráðs Árborgar vegna eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar.

Jórvík 1 – Deiliskipulagsbreyting

Tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Jórvíkur á Selfossi var samþykkt eftir kynningar og auglýsingarferli í bæjarráði þann 9. júlí 2026. Í breytingunni felst fjölgun og minnkun íbúða á fjórum fjölbýlishúsalóðum F2. Samkvæmt núverandi tillögu er gert ráð fyrir 36 íbúðum á þessum fjórum lóðum en þær verða 58 að breytingu lokinni. Jafnframt er innan tillögunnar tekið til stækkunar byggingarreita á lóðum Fossvík 1, 3 og 5, fækkun gesta bílastæða úr einu á hverjar fjórar íbúðir í einu á hverjar 5 íbúðir í takt við minnkun íbúða, auk þess sem skilgreining vegna hámarkshæðar byggingar er skilgreind með ítarlegri hætti þar sem hámarks vegghæð er felld út úr skipulaginu án þess þó að auka við heimildir um hámarks hæð bygginga. Innan tillögunnar eru samhliða settir fram skilmálar er varðar fjölbreyttar íbúðarstærðir innan svæðisins.

Við kynningu og auglýsingu tillögunnar bárust töluverðar athugasemdir frá íbúum innan hverfisins, tók tillagan nokkrum breytingum í kynningarferlinu þar sem var hætt við hækkun hámarkshæða húsa úr 8 m í 10 m, íbúðum var fækkað úr 68 í 58 og hætt var við niðurfellingu gestastæða. Uppfærð tillaga var lögð fram við afgreiðslu málsins ásamt samantekt athugasemda og viðbragða á fundi skipulagsnefndar þann 8 .júlí 2026 og á fundi Bæjarráðs Árborgar 9. júlí 2026 þar sem samþykkt var að breytingartillagan skyldi taka gildi með birtingu í B-deild stjórnartíðinda.

Það tilkynnist hér með.

Samkvæmt 2.mgr. 36. Gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar:

Selfosslína 1 – Breyting á legu jarðstrengs – Aðalskipulagsbreyting

Tillaga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi er varðar breytta legu Selfosslínu 1 í Hellisskógi. Jarðstrengur fyrir Selfosslínu 1 í Hellisskógi er færður til vesturs auk smávægilegrar tilfærslu við sveitarfélagamörk Flóahrepps. Breytingin er norðan þéttbýlismarka Árborgar. Í gildandi skipulagi er lega hans skilgreind nærri bakka Ölfusár. Í breyttu skipulagi er skilgreind strengleið færð ofar í landið, í vesturmörk skilgreinds skógræktarsvæðis, Hellislands (L162991) og skógrækt þar er skemmra á veg komin. Strengur verður tengdur við mastur 99, loftlínu sem liggur til norðurs að Íra- og Ljósafossvirkjunum.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,

Vigfús Þór Hróbjartsson, skipulagsfulltrúi



Þetta vefsvæði byggir á Eplica