Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 | Breytingar I. á ASK 2024 - 2312151
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036:
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti 4.12.2024 tillögu að breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, vegna breytinga á Selfossi og í dreifbýli. Lýsing breytingar hefur verið kynnt fyrir almenningi frá 28. febrúar til 16. mars 2024.
Tillagan var kynnt frá 19. júní til 10. júlí 2024 skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gerðar eru nokkrar breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036. Breytingarnar snúa einkum að þéttbýlinu á Selfossi ásamt breytingum á landbúnaðarsvæði og nýju svæði fyrir samfélagsþjónustu í dreifbýli.
- Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 | Greinargerð – breytingar á Selfossi og í dreifbýli
- Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 | Breytingar á sveitarfélagsuppdrætti
- Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 | Þéttbýlisuppdráttur - gildandi skipulag á Selfossi
- Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 | Þéttbýlisuppdráttur - breytingar á Selfossi
Um er að ræða eftirtaldar breytingar á greinargerð og uppdráttum:
- Miðsvæðið M3 breytist í íbúðarbyggð. Heimilt er að vera með hverfisverslun á lóðum næst hringtorgi Eyrarvegar og Suðurhóla.
- Athafnasvæði fyrir utan á. Unnið er að deiliskipulagi athafnasvæðis AT2. Gerðar eru lítilsháttar breytingar á afmörkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis AF6 vegna þess og skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1.
- Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ8 og þeim hluta samfélagsþjónustu S5 sem nær til leikskólans Glaðheima er breytt í miðsvæði.
- Iðnaðarsvæðinu I1 er að hluta til breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
- Sett er inn iðnaðarsvæði I21 og I22 fyrir borholur hitaveitu fyrir utan á. Einnig iðnaðarsvæði I23 fyrir borholur hitaveitu á suðurbakka Ölfusár.
- Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ11 er breytt í athafnasvæði.
- Íbúðarbyggðinni ÍB27 er breytt til baka í athafnasvæði (AT5), eins og var í eldra skipulagi.
- Á hluta af opnu svæði OP1, norðan við Sunnulækjarskóla, er heimilt að útbúa aðstöðu fyrir skátana.
- Skilmálum fyrir miðsvæðið M5 er breytt og byggingar lækkaðar.
- Skilmálum fyrir miðsvæðið M6 er breytt og byggingar lækkaðar.
- Sýslumannstúninu er breytt úr íbúðarbyggð í opið svæði.
- Syðsta hluta Votmúla 1, Lóustaða 1 og Votmúla 3 er breytt úr landbúnaðarsvæði L2 í L3.
- Sett er inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns og minnkar landbúnaðarsvæði samsvarandi.
- Settir eru skilmálar fyrir skuggavarp og vindvist. - Endurskoðuð er afmörkun svæða sem vinna á rammahluta aðalskipulags fyrir. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum.
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 12. desember 2024, til og með 30. janúar 2025
Þeir aðilar sem hafa athugasemdir eða ábendingar hafa frest til og með 30. janúar 2025, til að skila inn til skipulagsfulltrúa (runarg@arborg.is), eða á www.skipulag@arborg.is.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið www.skipulag@arborg.is
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Í samræmi við 52. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Kærufrestur er einn mánuður
frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi