Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


31. október 2024

Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar II. á ASK 2024 - 2404231

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036:

1. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar II. á ASK 2024 - 2404231

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti 21.8.2024 tillögu að breyttu Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, vegna breytinga á Selfossi og dreifbýli II. Tillagan var kynnt fyrir almenningi frá 17. júlí til 8. ágúst 2024.

Breytingin taka til eftirfarandi atriða:

  1. Selfossflugvöllur. Vesturbraut flugvallarins er stytt, tekin er út sá hluti hennar sem er á landi í einkaeigu. Hindranaflötum er breytt til samræmis. 
  2. Opið svæðið OP1 er minnkað norðan Selfossflugvallar og verður aðeins á landi í eigu sveitarfélagsins.
  3. Landbúnaðarsvæði L2 er stækkað yfir það svæði sem var opið svæði og flugvöllur.
  4. Þéttbýlismörkum Selfoss er breytt og aðlöguð að breyttri afmörkun Selfossflugvallar og opins svæðis.
  5. Kjallarar á Selfossi. Heimilt verður að vera með bílakjallara á Selfossi og gildir það líka um flóðasvæði, en kjallarar á slíkum svæðum skulu uppfylla tiltekin skilyrði.
  6. Lóðin Austurvegur 20 verður öll miðsvæði. Í dag er um helmingur hennar samfélagsþjónusta. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum. Gerð er breyting á greinargerð og uppdráttum: Gildandi og breyttur aðalskipulagsuppdráttur fyrir Selfoss, í mkv. 1:10.000. Ásamt breyttum uppdrætti fyrir dreifbýli í mkv. 1:50.000. Greinargerð með forsendum og umhverfismatsskýrslu.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á skipulagsgatt.is.

Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 31. október 2024, til og með 12. desember 2024

Þeir aðilar sem hafa athugasemdir eða ábendingar hafa frest til og með 12. desember 2024, til að skila inn til skipulagsfulltrúa (runarg@arborg.is), eða á skipulag@arborg.is.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is.

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi

Arborg-Blatt-STORT-Texti-til-hlidar-2362pix_1677665101135


Þetta vefsvæði byggir á Eplica