Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


19. mars 2026

Aðalskipulagsbreyting - Verslunar- og þjónustusvæði VÞ4 og opið svæði OP1.

Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg.

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar:

Aðalskipulagsbreyting – Verslunar- og þjónustusvæði VÞ4 og opið svæði OP1.

Óveruleg breyting er gerð á gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Breytingin tekur að hluta til stækkunar á svæði VÞ4 og samsvarandi minnkunar á svæði OP1. Breytingin er gerð til að auka landnýtingu fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi. Skipulagssvæðið sem breytingin tekur til er 3,2 ha að stærð.

Allar upplýsingar máls eru aðgengilegar á skipulagsgatt.is (málsnr. 157/2026)

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,

Vigfús Þór Hróbjartsson,

skipulagsfulltrúi

Arborg-Blatt-STORT-Texti-til-hlidar-2362pix_1677665101135


Þetta vefsvæði byggir á Eplica