Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


15. maí 2024

Árvegur 1 | Deiliskipulagsbreyting viðbygging

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti 20. 03. 2024 tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi Björgunarmiðstöðvar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 

Breytingartillaga gerir ráð fyrir að stækka byggingarreit Björgunarmiðstöðvar og að heimilt verði að byggja við, bæði til norðurs og til vesturs. 

Hámarkshæð húss verði allt að þrjár hæðir eða 10.5m hæð. Heimilt verði að byggja kjallara undir millibyggingu og nýtingarhlutfalli allt að 0,5, þ.e. hámarksbyggingarmagn allt að 3.724m2.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Skipulagstillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 15. maí 2024, til og með 26. júní 2024

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 26. júní 2024.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica