Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


24. febrúar 2021

Auglýsing um skipulagsmál | Móavegur 4

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana.

Móavegur 4, Selfossi - Deiliskipulag

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 30. nóvember 2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Móaveg 4. Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar kirkju og tengdra mannvirkja á lóðunum Móavegur 4 og 4a á Selfossi. Hámarks byggingarmagn á lóðunum verður samtals 1500 m² og mesta mænishæð 12,6 m.

Deiliskipulag | Móavegur 4

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Deiliskipulagstillögur, eru auglýstar með athugasemdafresti frá 24.02.2021 til og með 07.04.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 07.04.2021.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica