Auglýsing um skipulagsmál | Þykkvaflöt 3 - 9
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar.
Þykkvaflöt 3-9 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 17. mars 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Þykkvaflöt 3 - 9, Eyrarbakka. Deiliskipulagsbreytingin tekur til einbýlishúsalóðanna Þykkvaflöt 3, 5, 7 og 9. Lóðirnar verða sameinaðar í tvær raðhúsalóðir þar sem heimilt verður að byggja 4 íbúðir á einni hæð á hvorri lóð. Að öðru leyti gilda eldri skilmálar deiliskipulags.Þykkvaflöt | Deiliskipulagsbreyting
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.
Deiliskipulagsbreytingin er auglýst með athugasemdafresti frá 14.04.2021 til og með 26.05.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 26.05.2021.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is
F.h. Sveitarfélagsins
Árborgar
Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi