18. nóvember 2020

Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi að Tjarnarstíg, Stokkseyri

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 21. október sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi að Tjarnarstíg á Stokkseyri skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillaga | Tjarnarstígur, Stokkseyri
Deiliskipulag | Tjarnarstígur, Stokkseyri

Skipulagssvæðið markast af núverandi byggð við Tjarnarstíg, Dalbæjarlandi til norðurs, tjaldsvæði til suðurs og Helgastöðum til austurs. 

Deiliskipulagstillagan felur í sér framlengingu á Tjarnarstíg með 20 nýjum íbúðum á 4 parhúsalóðum, 3 raðhúsalóðum og 3 einbýlishúsalóðum.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu Skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi, frá 18. nóvember til 30. desember.

Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 30. desember annaðhvort á Austurveg 67 eða á netfangið skipulag@arborg.is

Virðingarfyllst,
Sigurður Andrés Þorvarðarson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica