Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


20. apríl 2023

Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi, Breiðumýrarholt

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi 13. apríl 2023, tillögu að deiliskipulagi í Breiðumýrarholti. 

Tillagan tekur til tveggja 6,4 ha landspildna í landi Breiðumýrarholts, L194764 og L194765. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á hvorri spildu verði byggingarmagn fyrir íbúðarhúsi allt að 250m2, bílskúr allt að 70m2, gestahúsi allt ap 150m2, hesthús/skemma allt að 500m2. 

Svæðið er í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036, skilgreint sem landbúnaðarland. Aðkoman að svæðinu er af Holtsvegi og norður Mýrarveg.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Tillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 19. apríl til og með 31. maí 2023.

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 31. maí 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson
skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica