Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


28. maí 2024

Austurás L 208094 | Deiliskipulag frístundahúsa og aðstöðuhús

Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar, vegna athugasemda við eftirfarandi deiliskipulagstillögu:

Bókun Bæjarstjórnar 15.5.2024:

Tillaga frá 27. fundi skipulagsnefndar, frá 24. apríl sl., liður 1. Austurás L 208094 - Deiliskipulag frístundahúsa og aðstöðuhús. 

Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulag frístundahúsa, auk aðstöðuhúss í landi Austuráss L208094, á fundi skipulagsnefndar 14.2.2024 og samþykkti Bæjarstjórn Árborgar sama mál á fundi sínum 21.2.2024. "Larsen hönnun og ráðgjöf leggur fram tillögu að deiliskipulagi í landi Austuráss L208094. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir 4 frístundahúsum, auk aðstöðuhús, á 3ha spildu, norðan Votmúlavegar, við Lækjarmótaveg. Hámark byggingarmagns innan byggingarreits er 300m2, og er gert ráð fyrir gistingu fyrir allt að 20 manns. Tillagan er í samræmi við kafla 4.2.1. í Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036." 

Tillagan hefur verið auglýst i samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010, í Lögbirtingarblaði og Dagskránni frá 28.2.2024, með athugasemdafresti til 10.4.2024. 

Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu Árborgar. Tvær athugasemdir bárust, annarsvegar frá Jóhönnu Eivinsdóttur Christiansen Austurmúla 1. L227703, og hinsvegar sameiginlegar athugasemdir frá Jóhönnu Eivinsdóttur Christiansen Austurmúla 1. L227703, Liselot Simoen Austurmúla 3. L227704, og Eiríki Jóhannessyni Lækjarmót land L166198. 

Athugasemdir snúa að hugsanlegri mengun vegna ryks vegna aukinnar umferðar um Lækjarmótaveg. Bent er á að þar eru börn sótt í skóla af skólabíl og lýst yfir áhyggjum af öryggi þeirra, vegna aukinnar umferðar um veginn. Talinn verða forsendubrestur af hálfu íbúa í Austurási 1, ef það rísi "ferðaiðnaður" á þessum stað. Telja ofangreindir aðilar að með uppbyggingu frístundahúsa á þessum stað muni það hafa áhrif á endursöluverð eigna þeirra. 

Að lokum er borin fram tillaga um aðra staðsetningu, þar sem aðkoma yrði frá Votmúlavegi. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands auk Vegagerðarinnar. Vegagerðin gerir athugasemd við að aðkoma inn á svæði frístundahúsa sé gegnt aðkomu inn að Austurmúla I og Austurmúla 3. Þá bendir Heilbrigðiseftirlit Suðurland á lausnir varandi regnvatn/ofanvatn. 

Nefndin þakkar fyrir innsendar athugasemdir. 

Austurás L208094 er skráð sem lögbýli samkvæmt lögbýlaskrá og fellur því að skilgreiningu Aðalskipulags Árborgar 2020 - 2036, þar sem eftirfarandi er fyrirskrifað: "Á bújörðum er heimilt að hafa húsnæði allt að 500 m2 fyrir starfsemi sem er ótengd landbúnaði. Einnig er heimilt að byggja 4 stök frístundahús og vera með gistingu fyrir allt að 20 gesti." 

Staðsetning frístundahúsa miðast við að fjarlægð frá Votmúlavegi skuli vera minnst 100m. Verði húsum valinn annar staður nást ekki þau lágmörk. Nefndin telur að umferð muni ekki aukast það mikið að það verði örðugt að búa í nágrenni frístundahúsa vegna rykmengunar. Þá bendir nefndin á að ekki sé í hendi að lítið sem ekkert verði byggt við Lækjarmótaveg í nánustu framtíð, og eða að það verið sett bundið slitlag á veginn. 

Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum Vegagerðarinnar, með því að færa aðkomu sunnar um 50 m. Texti vegna athugasemda HES hefur einnig verið lagfærður. Skipulagsnefnd samþykkti lagfærða tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, tillögu að svörum við athugasemdum og feli skipulagsfulltrúa að senda skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 42.gr. skipulagslaga og auglýsa niðurstöðu Bæjarstjórnar Árborgar skv. 3.mgr. 41.gr. sömu laga.

Bragi Bjarnason, bæjarfulltrúi D-lista og Álfheiður Eymarsdóttir, bæjarfulltrúi Á-lista, taka til máls. Bragi Bjarnason, bæjarfulltrúi D-lista ber upp og leggur til eftirfarandi afgreiðslutillögu: 

Bæjarstjórn Árborgar tekur undir með skipulagsnefnd og þakkar fyrir innsendar athugasemdir. Austurás L208094 er skráð sem lögbýli samkvæmt lögbýlaskrá og fellur því að skilgreiningu Aðalskipulags Árborgar 2020 - 2036, þar sem eftirfarandi er fyrirskrifað: „Á bújörðum er heimilt að hafa húsnæði allt að 500 m2 fyrir starfsemi sem er ótengd landbúnaði. Einnig er heimilt að byggja 4 stök frístundahús og vera með gistingu fyrir allt að 20 gesti.“

Staðsetning frístundahúsa miðast við að fjarlægð frá Votmúlavegi skuli vera minnst 100m. Verði húsum valinn annar staður nást ekki þau lágmörk. 

Bæjarstjórn telur að umferð muni ekki aukast það mikið að það verði örðugt að búa í nágrenni frístundahúsa vegna rykmengunar. 

Þá bendir bæjarstjórn á að ekki sé fyrirséð hvort að ekkert verði byggt við Lækjarmótaveg í nánustu framtíð, og eða að það verið sett bundið slitlag á veginn. 

Brugðist hefur verið við ofangreindum athugasemdum Vegagerðarinnar, með því að færa aðkomu sunnar um 50 m. Texti vegna athugasemda Heilbrigðiseftirlits Suðurlands hefur einnig verið lagfærður. 

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir lagfærða tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 42.gr. skipulagslaga og auglýsa niðurstöðu Bæjarstjórnar Árborgar skv. 3.mgr. 41.gr. sömu laga. 

Fundahlé tekið kl. 17:03. Fundi fram haldið kl. 17:08 Afgreiðslutillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica