Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


12. júní 2025

Austurvegur 61-63 | Deiliskipulagsbreyting

Í samræmi við 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagsbreyting:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 4.6.2025 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61-63 á Selfossi. 

Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum Austurvegur 61-63 verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð. Breytingin á gildandi deiliskipulagi felur í sér stækkun á byggingarreit til norðurs og austurs, auk þess sem heildarnýtingarhlutfall er aukið um 0,1, úr 1,7 í 1.8. Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi ásamt bílakjallara. Fjöldi íbúða verður allt að 21. Tillagan gerir ráð fyrir 17 bílastæðum í kjallara, og 4 ofanjarðar. Aðkoma er frá Heiðmörk.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is.

Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 12. júní 2025, til og með 25. júlí 2025.

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 25. júlí 2025.

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi

Arborg-Blatt-STORT-Texti-til-hlidar-2362pix_1677665101135


Þetta vefsvæði byggir á Eplica