Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


7. febrúar 2023

Deiliskipulagsbreyting | Austurvegur 69

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 1. febrúar 2023, tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Austurveg 69 Selfossi.

Deiliskipulag fyrir lóðina Austurvegur 69, var upphaflega unnið í mars 2004 m.s.br. Síðasta breyting var samþykkt í bæjarstjórn Árborgar 13. maí 2015 og í sveitarstjórn Flóahrepps 4. mars 2015 og var samþykkt þessi birt í B-deild Stjórnartíðinda með auglýsingu nr. 1001 þann 4. nóvember 2015. Austasti hluti reitsins er innan marka Flóahrepps og samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna er sá hluti skráður undir Árborg en lýtur skipulagslegri forsögn beggja. 

Deiliskipulag þetta er bæði í samræmi við Aðalskipulag Sveitarfélagsins Árborgar 2020 - 2036 (reit VÞ6). og Aðalskipulag Flóahrepps 2017 - 2029. Aðkoma að lóðinni frá vestri helst óbreytt en frá austri mun hún breytast. Í stað þess að aka í boga frá hringtogi inn á lóðina verður ekið í beinni stefnu til norðurs og síðan beygt til vesturs inná lóðina. 

Samráð hefur verið viðhaft við forsvarsmenn beggja sveitarfélaga um aðkomu frá austri og nýja götu innan Flóahrepps. Breytt aðkoma að austan mun geta tengst íbúðabyggð Árbakkalands norðan Austurvegar 69. Jafnframt tengist hún framtíðar atvinnusvæði (VÞ1) innan Flóahrepps en reikna má með vaxandi uppbyggingu þar eftir að ný Ölfusárbrú mun rísa. Einnig má reikna með að austurleiðin geti tengst atvinnusvæði Mjólkurbús Flóamanna. 

Markmið deiliskipulagsbreytingar er að nýta lóðina til frekari atvinnuuppbyggingar um leið og skapaðar eru nýjar tengingar við nærliggjandi svæði innan Árborgar og Flóahrepps.

Helstu breytingar frá fyrra deiliskipulagi eru eftirfarandi:

  1. Hringtorg á Austurvegi helst óbreytt en aðkoma mun liggja til norðurs og tengjast lóðunum með nýjum hætti. Vegur þessi mun geta tengst framtíðar uppbyggingu við Árbakkaland og eins svæðum innan Flóðahrepps. Lóðarmörk mót norðri færast um 3m til norðurs og stækka viðkomandi lóðir (69f og 69g) við þá færslu.
  2. Lóð nr. 69 er brotin upp og minnkar til samræmis (sjá uppdr.). Byggingareitur fær breytta lögun og bílast. breytast.
  3. Lóð 69a er brotin upp og minnkar í samræmi við það (sjá uppdrátt). Byggingareitur helst óbreyttur. 
  4. Lóð 69b er stækkuð til suðurs og byggingareitur að sama skapi.
  5. Lóð 69c er felld undir lóð 69b og stækkar lóð 69b við það.
  6. Gerð er sérstök lóð um akveg sunnan við Austurveg 69 sem fær lóðanúmerið 69c.
  7. Stofnuð er ný lóð, 69e á austurhluta reits.
  8. Stofnuð er ný lóð, 69f á norðurhluta reits.
  9. Stofnuð er ný lóð, 69g á norðausturhluta reits.
  10. Norðausturhorn lóðarinnar (L229186) er stækkun skv. samþykkt Árborgar og Flóahrepps frá 2019, stærð, 1.971m². Þetta þríhyrningslaga horn hefur áður verið sameinað lóð Austurvegar 69. Við endanlegt samþykki þessa deiliskipulags þarf að breyti heiti þessa horns en það er í landeignaskrá nefnt Austurvegur 69E sem verður þá rangt því önnur lóð hefur fengið það heiti skv. deiliskipulaginu. Lóð á vesturhluta lóðar, spennistöð nr. 69d, helst óbreytt.

Ofangreind skipulagstillaga liggjur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 8. febrúar til og með 22. mars 2023.

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 22. mars 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica