Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


1. mars 2022

Deiliskipulagsbreyting | Engjaland 2 & 4

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar eftirfarandi tillögur deiliskipulagsáætlanna.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 16. febrúar 2022 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu að Engjalandi 2 og 4 Selfossi. 

Breytingin felur í sér hækkun húsa um eina hæð þannig að heimilt verði að byggja 4. hæða hús í stað 3. hæða á lóðunum. 

Einnig er óskað eftir fjölgun íbúða á hvorri lóð um 2 íbúðir. Megin ástæða hækkunar er að gert verður ráð fyrir að koma fyrir bílageymslum á hluta af 1. hæð húsanna.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 02.03.2022 til og með 13.04.2022. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 13.04.2022.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Virðingarfyllst
Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica