Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


1. september 2022

Deiliskipulagsbreyting | Árvegur 1 HSU

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögu.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 24. ágúst 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Árveg 1, (Heilbrigðisstofnun Suðurlands). 

Deiliskipulagsbreyting | Uppdráttur dags 18.08.2022

Breitingin felur í sér áform um stækkun á húsnæði HSU. Núgildandi byggingarreitir A og A-2, munu sameinast í einn sem byggingarreitur A. Viðbótar byggingarmagn við áður samþykkt áform er um 1.800m2. Annars gilda áður samþykktir skilmálar frá deiliskipulagi í apríl 2018.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 31. ágúst 2022 til og með 12. október 2022

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 12. október 2022.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson | skipulagsfulltrúi Árborgar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica