Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


29. mars 2023

Deiliskipulagsbreyting | Lækjargarður L166200

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 22. mars 2023, tillögu að deiliskipulagi fyrir landspilduna Lækjargarður L166200, sem er tæpir 4 ha að stærð. 

Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja á spildunni íbúðarhús allt að 350m2 að stærð og getur verið 1 - 2 hæðir, tvö gesthús allt að 80m2 að stærð, hvort, auk skemmu allt að 400m2 að stærð. Landspildan er í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 skilgreint sem landbúnaðarland, í flokki L2. Aðkoma er af Votmúlavegi og aðkomuvegi að Lækjargarði.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Tillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 29. mars til og með 10. maí 2023

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 10. maí 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica