Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


15. desember 2023

Deiliskipulagsbreyting | Tryggvagata 15, Selfossi

Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagsbreyting.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 13. desember 2023, tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi skóla- og sundhallarreits við Tryggvagötu 15, á Selfossi. 

Breytingin nær til nyrsta hluta sundhallarreits. Meginbreytingin fellst í að gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja tvær hæðir, í stað einnar hæðar sem var samþykkt í deiliskipulagsbreytingu með birtingu í B-deid stjórnartíðinda 23.9.2019. 

Þá er gert ráð fyrir að akstursstefna milli Tryggvagötu og Bankavegar verði í formi einstefna. Samfara ofangreindum breytingum verða lóðamörk Tryggvagötu færð til norðurs, auk þess sem lóðarlína á austurmörkum Sandvíkurseturs eru færð nokkra metra til vesturs.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Deiliskipulagstillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 20. desember, til og með 31. janúar 2024

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 31. janúar 2024.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is.

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica