Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


15. desember 2023

Deiliskipulagstillaga | Nabbi 3 - spilda á landbúnaðarlandi

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 13. desember 2023,tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Nabbi 3 (L232497) sem er 14225,4 m2 að stærð. 

Lóðin er staðsett í Sveitarfélaginu Árborg, í Sandvíkurhreppi hinum forna. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja frístundahús og gestahús auk skemmu. Landspildan er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Deiliskipulagstillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 20. desember, til og með 31. janúar 2024

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 31. janúar 2024.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is.

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica