Eyravegur 26-30 | Deiliskipulagsbreyting
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar eftirfarandi tillögur deiliskipulagsáætlanna.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 20. október 2021 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu að Eyravegi 26-30. Markmið breytingarinnar er að byggja tvær hæðir til viðbótar ofan á núverandi hús á nr. 26. Með þeirri framkvæmd mun íbúðum í húsinu fjölga um u.þ.b. 16 íbúðir og verða þá samtals 51 eftir breytingu. Lóð 28-30 er óbyggð og þar er gert ráð fyrir að muni rísa fjölbýlishús á 4 hæðum með allt að 54 íbúðum. Heimild verður fyrir kjallara sem að hluta til verður nýttur fyrir geymslur og hólageymslur, en þar verður einnig heimild fyrir verslunar- og þjónusturými.
Eyravegur 26-30 | Deiliskipulag
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.
Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 27.10.2021 til og með 8.12.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 8.12.2021.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is
Virðingarfyllst
Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi