Grænamörk og Mörk – Íbúðarbyggð ÍB17 – Aðalskipulagsbreyting og deiliskipulag
Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt eftirfarandi skipulagslýsing:
Grænamörk og Mörk – Íbúðarbyggð ÍB17 – Aðalskipulagsbreyting og deiliskipulag.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti 4.2.2026 skipulagsalýsingu sem tekur til breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Gerð verður breyting á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 og nýtt deiliskipulag unnið. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarskast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk og Austurvegi. Heimilaðar verða fleiri byggingar og íbúðir ásamt því að umferð akandi og gangandi verður yfirfarin.
Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar:
Tryggvagata 36 – deiliskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 4.2.2026 með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista, deiliskipulagsbreytingu sem tekur til lóðar Tryggvagötu 36. Tillagan var samþykkt eftir auglýsingu til gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda með fyrirvara um yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati meirihluta bæjarstjórnar var brugðist við athugasemdum og umsögnum, sem bárust vegna tillögunnar á auglýsing- og kynningartíma tillögunnar, með fullnægjandi hætti. Gert er ráð fyrir einu 3ja hæða íbúðarhúsi ásamt sorpskýli á lóðinni. Ekki er gert ráð fyrir kjallara. Þriðja hæð íbúðarhússins skal vera inndregin, a.m.k. 5 m á norðurhlið og a.m.k. 2 m á aðrar hliðar. Heildarfjöldi íbúða í húsinu geta orðið allt að 36 og er gert ráð fyrir samsvarandi fjölda bílastæða innan lóðarinnar. Byggingar skulu standa innan byggingareita. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 2.600 m2 og nýtingarhlutfall er um 0,84.
Tillagan var auglýst í Lögbirtingarblaði og Dagskránni frá 11.12.2025, með athugasemdafresti til 26.1.2026. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar. Umsagnir og athugasemdir bárust við auglýsingu tillögunnar og voru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt samantekt andsvara og viðbragða. Tillagan var aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, auk þess sem málið var aðgengilegt á skipulagsgatt.is. Allar upplýsingar málsins ásamt fundarbókunum eru aðgengilegar á skipulagsgatt.is (málsnr. 1338/2025)
Ofangreind skipulagslýsing liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is
Skipulagslýsingin er í kynningu frá 12. febrúar 2026, til og með 6. mars 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 6. mars 2026.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst,
Vigfús Þór Hróbjartsson
skipulagsfulltrúi
Fylgiskjöl: Skipulagslýsing Grænamörk og Mörk
